157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

Framhaldsfundir Alþingis.

[15:00]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra góð orð og býð hv. alþingismenn velkomna til starfa. Þeim og starfsliði Alþingis óska ég gleðilegs árs og þakka gott samstarf á liðnu ári.

Síðustu daga hefur verið fundað í fastanefndum og þá hafa þingflokkar einnig verið að funda. Þingstörfin á síðasta hausti tókust vel og okkur tókst að ljúka þeim mjög nærri þeirri áætlun sem við höfðum sett okkur. Ég vil ítreka þakkir mínar til þingmanna fyrir framlag þeirra til þingstarfanna á haustþinginu.

Um miðjan maí verða haldnar sveitarstjórnarkosningar og mun skipulag þingstarfanna taka mið af því en gert verður stutt hlé á þingstörfum í aðdraganda kosninganna. Þingstörf hefjast síðan að nýju eftir sveitarstjórnarkosningar og munu standa fram á sumar eins og starfsáætlun gerir ráð fyrir. Fram undan eru annasamar vikur og mánuðir á vetrar- og vorþingi þar sem Alþingi mun takast á við stór og þýðingarmikil mál. Þó að væntanlega verði tekist á um málefni þá vona ég líka að við getum í störfum okkar átt gott og uppbyggilegt samstarf og þannig skilað góðu verki.