157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

varamenn taka þingsæti.

[15:12]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Borist hafa bréf frá þingflokki Flokks fólksins um að Guðmundur Ingi Kristinsson og Jónína Björk Óskarsdóttir muni ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi 1. og 2. varamaður á lista Flokks fólksins í Suðvesturkjördæmi, Grétar Mar Jónsson og Þóra Gunnlaug Briem.

Grétar Mar Jónsson og Þóra Gunnlaug Briem hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.