mannabreytingar í nefndum.
Forseti vill tilkynna að borist hefur erindi frá þingflokki Flokks fólksins um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa, á þá leið að Ásthildur Lóa Þórsdóttir taki sæti sem aðalmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í stað Sigurjóns Þórðarsonar. Þá taki Sigurjón Þórðarson sæti sem aðalmaður í fjárlaganefnd í stað Ragnars Þórs Ingólfssonar og Ásthildur Lóa Þórsdóttir taki sæti sem varamaður í allsherjar- og menntamálanefnd í stað Ragnars Þórs Ingólfssonar. Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.