157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

farsæld barna og ungmenna.

[15:22]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég held að það sé óhætt að segja að umræða um menntamál hafi náð nýjum hæðum undanfarna daga. Við erum að fá þriðja menntamálaráðherrann á einu ári og nú reynir á. Það reynir á okkur öll, þingmenn hér inni, ráðherra, að við tökum málefnalega umræðu um málefni barna og ungmenna, sérstaklega þegar kemur að líðan þeirra og menntun. Það skiptir líka máli að við ræðum heildarmyndina, að við forðumst einhverjar skyndilausnir og séum ekki með einhverja sleggjudóma án þess að hafa einhver gögn og gagnreyndar aðferðir að baki okkar máli. Við í Framsókn höfum vissulega verið með þennan málaflokk undanfarin sjö ár. Það hefur mikið áunnist en vissulega eru önnur verkefni sem við hefðum viljað að hefðu getað gengið hraðar. Segjandi þetta þá er þetta langtímaverkefni. Þetta er ekki verkefni sem einhver einn ráðherra getur leyst á einu kjörtímabili. Þetta er langtímaverkefni og verður á höndum okkar stjórnmálamanna um ókomna tíð. En við finnum til ábyrgðar og við höfum sent erindi til allra formanna hér á þingi þar sem við köllum eftir því að við eigum samtal við hagaðila, að við eigum samtal við fagfólkið í greininni og í framhaldinu yrði stofnaður þverpólitískur hópur þar sem er einn aðili frá hverjum einasta þingflokki hér á þingi þar sem við fundum með fagfólkinu og búum til lausnir til skemmri og lengri tíma sem við sammælumst um sem geta þá raungerst.

Frú forseti. Ég vil ítreka það að þegar við stjórnmálamenn náum saman um stór samfélagsleg verkefni þá skapast stöðugleiki, skapast traust og það skapast líka og næst betri árangur sem er afar mikilvægt fyrir þennan málaflokk sem er málaflokkur framtíðarinnar og einn mikilvægasti málaflokkurinn hér í þinginu.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvernig hún taki í þessa beiðni okkar í Framsókn og hvort hún sé tilbúin til þess að leggjast á eitt með okkur og að við tökum saman utan um þennan málaflokk.