157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

farsæld barna og ungmenna.

[15:25]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. fyrirspyrjanda og þingmanni, Ingibjörgu Isaksen, fyrir þessa fyrirspurn af því að þetta er einmitt mál sem brennur ekki bara á ríkisstjórninni, brennur ekki bara á okkur þingmönnum heldur allri þjóðinni. Þess vegna er það að mínu mati gott að finna að við erum að reyna að ná saman um þetta mikilvæga mál. Til að mynda Viðreisn, við lögðum gríðarlega mikla áherslu á andlega líðan barna og ungmenna í síðustu kosningabaráttu og erum að fá ákveðnum málum framgengt þar. Mér finnst gott að sjá til að mynda hvernig við finnum ástríðuna í nýjum barna- og menntamálaráðherra. Með því að setja m.a. formann eins af stjórnarflokkunum í þennan málaflokk erum við að gefa merki um að það verði enn betur tekið utan um málaflokkinn en hefur verið gert á síðustu árum og jafnvel áratugum. Það er það sem við þurfum að gera, að horfast í augu við það hvernig skólaumhverfið er. Skólakerfið okkar er ekki ónýtt, það er ekki þannig. Skólakerfið okkar er með götum, við vitum það. Það eru göt hér og þar, m.a. út frá krefjandi áskorunum samtímans sem við verðum öll sem eitt að reyna að sammælast um að laga í samstarfi við skólasamfélagið, þ.e. við fagfólkið, við kennara en ekki síður við foreldra og nærsamfélagið sem slíkt. Þetta er risaáskorun og ég fagna því að við fáum að ræða þetta hér í óundirbúnum fyrirspurnum. Það er rétt, þetta er langtímaverkefni sem við þurfum að fara í.

Ég vil nefna varðandi þverpólitíska þingmannahópinn að ég held að það sé mjög mikilvægt að allir flokkar komi að þessu en að því er mér skilst er þegar hópur í gangi, þverpólitískur þingmannahópur, sem m.a. fjallar um þetta málefni og málefni barna. Alla vega er ríkur vilji og ég fagna því ef stjórnarandstaðan er tilbúin til að koma með ríkisstjórninni í þessa vegferð til þess að taka betur utan um menntakerfið og börnin og ungmennin okkar núna á þessum krefjandi tímum.