rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir andsvarið og er fegin því að hún tekur undir mikilvægi þess að að við tökum á þessu máli. Varðandi fyrirspurnina um reynslu af Danmerkurlöggjöfinni þá var litið til hennar og þær upplýsingar sem við höfum er að hún hafi verið góð. Í því máli sem ég mæli fyrir núna og er komið fyrir þingið er að ýmsu leyti gengið skemur en gert var í Danmörku. En það eru sennilega einhver — ég er bara að reyna að rifja það upp sem ég stend hér, þetta með frítekjumarkið. Það þarf að taka tillit til ákveðinna þátta, mismunandi markaða, mismunandi stærða, þess að minni fjárfestingar þarf til að ná hér ítökum en í stærra hagkerfi o.s.frv. Við erum hins vegar með tímafresti, málsmeðferð og aðra slíka ferla sem eru mun styttri hér en í dönsku lögunum þannig að við vorum að smíða þetta á þann hátt að við næðum að hafa sveigjanleikann meiri. Ég veit að það var komið til móts við margt í umsögn Samtaka iðnaðarins, svo dæmi sé tekið, farið yfir þessi atriði og komið til móts við þeirra sjónarmið þar sem einmitt var drepið á þau atriði sem hv. þingmaður kemur með hér. En varðandi það nákvæmlega hvert frítekjumarkið á að vera þá er það svo sem eitthvað sem er nauðsynlegt að fara vel yfir. En þetta er niðurstaða sem kemur úr vinnunni. Ég er eiginlega að rifja þetta upp, það eru ekki fjárhæðarmörk sem frítekjumörk, þetta snýst um nýstofnun fyrirtækja, þannig að ég held að ég verði eiginlega að fá aðeins að hugsa þetta í seinna andsvari, af því að hv. þingmaður spyr um frítekjumörk, ég held að það sé ekki frítekjumark í frumvarpinu sjálfu. En stóra myndin er þessi: Það var komið til móts við athugasemdir, við fórum nákvæmlega yfir þessi atriði með hagaðilum, það var komið til móts við margar athugasemdir. Við litum mikið til dönsku laganna, í mörgu göngum við skemur en sennilega lengra í einhverju öðru.