rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Hún hafði ekki tök á að koma að reglugerðarheimildum ráðherra, sem er auðvitað mjög viðamikið atriði, og kannski má líka nefna að t.d. í dönsku lögunum eru ákveðin atriði rýnd af hálfu sérstakrar stofnunar en samkvæmt frumvarpinu sem við ræðum hér þá er það heimild ráðherra eingöngu sem á að stýra því. Það vekur upp ákveðnar spurningar hvort það sé besta leiðin vegna þeirra ótrúlega miklu hagsmuna sem hér eru undir. Það komu fram ákveðnar athugasemdir í samráðsgátt sem hefur ekki verið svarað, t.d. um víðtækar og óvissar skilgreiningar, tilkynningarskyldan nær til fjölda annarra sem koma kannski málinu ekki við, ráðherra hefur mjög víðtækar heimildir og það er ákveðin óvissa um fyrirsjáanleikann.
Mig langar í mínu seinna andsvari að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún geri ekki ráð fyrir að vinna nefndarinnar verði löng og ítarleg, (Forseti hringir.) jafnvel hvort það megi skoða að eitthvað af þessum reglugerðarheimildum verði skrifað einfaldlega betur inn í lögin sjálf, svo það sé kannski skýrara en frumvarpið ber með sér (Forseti hringir.) eins og það er núna, og hvort hún sé ekki með þingheimi í liði með því að þetta sé mál sem þurfi að vinna mjög vel af hálfu þingsins.