rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.
Frú forseti. Ég er glöð að hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson er ánægður með að málið skuli vera komið fram en ég átta mig satt best að segja ekki á því hverju hann er að leita eftir með spurningunni um af hverju þetta sé ekki komið fyrr fram. Hér stend ég á fyrsta degi þings eftir jólahlé. Telur hv. þingmaður það ekki nægilegan tíma til að klára þetta fyrir vorið? Er hann að boða einhver slík vinnubrögð hér í þinginu að þetta verði stoppað? Um hvað snýst málið? Hér hef ég lýst í ræðu minni viðamiklu samráði og ákveðnum breytingum og ég held að hv. þingmaður sé a.m.k. jafn vel upplýstur og ég um þann óróleika og þær breytingar sem hafa verið á alþjóðavettvangi sem hafa knúið á um ákveðna endurskoðun, ákveðnar þreifingar, ákveðnar breytingar. Eigum við að fara aftur yfir þetta? Á að bæta í þetta? Á að herða, á að skoða? Það hefur verið unnið að þessu máli og nú er það lagt hér fram. Það hefði sennilega getað verið tilbúið til framlagningar, hefði verið stemning í þinginu fyrir því að taka málin og vinna lengur inn í desember. Það var ekki. Hér kemur málið fram. Af hverju ekki fyrr? Það var tilbúið í desember og kemur hér fram. Aftur: Ég bara átta mig hreinlega ekki á þessari spurningu, en kannski er hv. þingmaður til í að útskýra eftir hverju hann er að leita í staðinn fyrir að henda út svona öngli og vona að ég bíti á. Ég bara skildi ekki spurninguna, tilganginn með henni.