157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.

300. mál
[16:23]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir góða spurningu. Þetta er mál sem hefur verið töluvert rætt og það má jafnvel nefna afnotarétt fasteigna líka, þetta eru hlutir sem hafa verið nefndir. Stutta svarið er kannski annars vegar að það mál er alla jafna ekki undir löggjöf af þessum toga í þeim löndum sem við berum okkur saman við, heldur fellur undir annars konar löggjöf. Og af því að hv. þingmaður spyr einmitt um jarðir, bújarðir, þá tökum við í ráðuneytinu undir það með Bændasamtökunum, einmitt það sem hv. þingmaður er að nefna hér, að nauðsynlegt sé að tryggja öryggi í tengslum við fjárfestingar erlendra aðila þegar kemur að jörðum og auðlindum. En þetta hefur kannski verið viðfangsefni annarrar löggjafar, þ.e. ákvæða jarðalaga sem er líka lagabálkur sem þarfnast endurskoðunar. Ég veit að það hefur lengi verið vinna við það og talað um að þau lög þurfi að endurskoða fyrir utan síðan lög um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, af því að ég nefndi fasteignirnar hér áðan. Þannig að þetta eru atriði sem falla utan gildissviðs frumvarps um rýni á erlendum fjárfestingum þegar kemur að þjóðaröryggi. Svo má alveg deila um það og ég tek alveg undir að það er alveg eðlilegt að ræða það. Tilteknar fjárfestingar í starfsemi sem tengjast auðlindanýtingu eru tilkynningarskyldar, falla undir þetta eins og ég taldi upp áðan. Mér þykir þetta vera einmitt — án þess að það sé upp á mig að hafa stjórn á því, en ég má hafa skoðun á því og mér finnst ekki óeðlilegt að það sé rætt hvort ástæða sé til að skoða þetta. Við vitum jú, þótt við getum borið okkur saman við nágrannalönd okkar að mjög mörgu leyti, að við erum kannski sér á báti með akkúrat þetta, með auðlindir, bújarðir og dreifbýlið og landið okkar, þannig að þetta er álitamál og ég tek hreinlega undir með hv. þingmanni.