157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.

300. mál
[16:47]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég tek reyndar ekki undir efni andsvarsins að því leyti að hann sé hér að segja að Sjálfstæðisflokkurinn hafi staðið í vegi fyrir þessu máli, hafa verið að flækjast fyrir eða hvernig svo sem það var orðað af hinum ágæta hv. þingmanni. Ég hef um þetta að segja að Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf lagt á það mikla áherslu að hér sé um mjög mikilvægt mál að ræða en, eins og ég tel mig hafa rakið í minni ræðu, það er ekki síður mikilvægt, þegar um mikilvæg mál er að ræða, að þá verður að vinna þau vel.

Frumvarpið, sem ég veit að ég þarf ekki að minna hv. þingmann á að var á forræði hæstv. þáverandi forsætisráðherra, gekk of langt í þá veru. Sjálfstæðisflokkurinn hafði áhyggjur af því, Sjálfstæðisflokkurinn sagði það hátt og skýrt, enda var það samhljóma við fjöldamargar athugasemdir og áhyggjur sem komu fram í málinu sem var enda tekið til þeirrar þinglegu meðferðar sem með réttu bar að gera varðandi umfang málsins og þá hagsmuni sem eru undir. Það er það eina sem ég er að segja að ég, fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins bæði í hv. nefndinni og hér í hv. þingheimi, mun gera það nákvæmlega sama. Þetta mál skiptir ofboðslega miklu máli. Það skiptir máli að rýna vel hverjir geta fjárfest í viðkvæmum innviðum og tækifærum á Íslandi, ekki til þess að meina þeim það, á því er reginmunur, eins og t.d. varðandi jarðaumræðu og annað, heldur til að sigta út óprúttna aðila. En við að sigta út óprúttna aðila þá verðum við líka að passa að við séum ekki óvart að sigta út aðila sem við þurfum svo gjarnan á að halda hér. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf sagt það skýrt og við höldum áfram að segja það skýrt því það einfaldlega skiptir máli.