157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.

300. mál
[16:49]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það er auðvitað að sjálfsögðu talsvert mikill munur á stefnu t.d. Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í málum sem þessum. Þó að báðir flokkar aðhyllist atvinnufrelsi og vilji styðja erlenda fjárfestingu hefur það margoft komið fram í samstarfi þessara flokka á liðnum áratug, og áratugum jafnvel, að við hefðum t.d. viljað ganga miklu lengra í að verja auðlindir og land. Ég hef t.d. áhyggjur af því að í þessu frumvarpi sé verið að fella út fasteignahlutann og þar með land, venjulegar bújarðir, sem ég spurði hæstv. ráðherra um, en hún vildi endilega misskilja mig hér í andsvari; að ég væri að leggjast gegn málinu með einhverjum hætti eða boða einhverjar langar umræður. Ég hef áhyggjur af því. Ég veit ekki hvort Sjálfstæðisflokkurinn hefur sömu áhyggjur. Ég hef áhyggjur af því að hér er t.d. verið að leggja til að ráðherra fái heimild til að undanþiggja ákveðinn samstarfs- og bandalagsríki frá rýni að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, t.d. að öll eigendakeðjan skuli vera frá slíku ríki. Af hverju er það? Ég get alveg verið sammála hv. þingmanni um að það geti verið að það sé hreinlega einhver vara sem við þurfum og það sé eðlilegt að það sé ekki verið að leggja einhverja steina í veg þess. En er ekki eðlilegt að það sé einhver rýni? Af hverju er eðlilegt að það sé einhver undanþága? Ég bara spyr. Síðan eru þarna nokkrir aðrir þættir í þessu. Ég er t.d. ekkert endilega viss um að það að fara úr 10%, sem ég get verið sammála um að hafi kannski verið gengið of langt, upp í 25%. Það getur vel verið að það sé of langt þar á milli og það sé eðlilegt að það sé einhver rýni skoðuð.