rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég veit að það er ekki vel séð nú á dögum að gera athugasemdir við upplifanir fólks þannig að ekki ætla ég að gera lítið úr upplifun hv. þingmanns um að það hafi verið hans upplifun að Sjálfstæðisflokkurinn hafi, eins og hann orðaði það, verið svo hræddur við alla fjárfestingu að það mátti helst ekkert standa í þessu frumvarpi. Ég ætla að fá að segja að mín upplifun var alls ekki sú. Mín upplifun var og er sú að Sjálfstæðisflokkurinn stendur algerlega hreinn og klár með því varðandi það þjóðaröryggi sem þetta frumvarp er að passa upp á og þá allsherjarreglu sem við erum að gæta að, þá er þetta mál mjög mikilvægt og það er mikilvægt að það sé vel unnið, það sé skýrt og það nái fram að ganga samkvæmt tilgangi sínum eins og frumvarpið kveður á um.
Ég ætla að fá að segja það einu sinni enn: Það að rýna fjárfestingar út frá þjóðaröryggi er ekki það sama og að búa til óþarflega flókið og fráhrindandi regluverk varðandi almenna fjárfestingu sem hefur ekki með þjóðaröryggi að gera. Þetta skiptir máli. Ég veit að í pólitískri umræðu er sjálfsagt að ræða almennt erlenda fjárfestingu á Íslandi og hvort hún sé góð eða slæm. Það er sjálfsagt. Hér erum við að ræða rýni til að passa upp á að fjárfesting sem ógnar þjóðaröryggi rati ekki hingað inn. Sjálfstæðisflokkurinn mun taka þátt í þeirri vinnu. Sjálfstæðisflokkurinn skammast sín ekki fyrir að standa nú í þeirri vinnu fram undan eins og hann hefur gert á árum áður með alþjóðlegum fjárfestingum og atvinnulífinu almennt, því það skiptir máli og ég geri athugasemd við að það sé gert lítið úr því sem var mín upplifun.