rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.
Forseti. Mig langaði bara rétt að koma hingað upp og þakka þeim sem hafa tekið þátt í þessari umræðu. Hún er mjög mikilvæg og ég tek undir meginþættina í lokaorðum hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar sem sagði að við þyrftum að gæta þess að setja ekki samasemmerki á milli þeirra sem koma með málefnalega gagnrýni á tiltekin atriði þessa máls og þess að vera á móti þessu máli yfir höfuð. Það get ég ekki ímyndað mér að nokkur sé vegna þess, eins og ég kom inn á í ræðu minni, að þetta lýtur ekki eingöngu að þjóðaröryggi, þó að það eitt og sér sé auðvitað nóg, heldur líka að því að tryggja það að við löðum að jákvæðar og góðar fjárfestingar, af því að það snýst jú um þetta og þess vegna hafa nú sem betur fer viðtökur atvinnulífsins við þessu máli verið jafn jákvæðar og raun ber vitni.
Það er sem sagt mjög mikilvægt að átta sig á því að þegar vel er vandað til verka þá hefur löggjöf af þessum toga ekki fælandi áhrif. Hún einfaldlega hvetur til þess að hingað komi þeir aðilar sem við höfum áhuga á að fá hingað til lands í mikilvægar fjárfestingar, þar með talið í nýsköpun, vegna þess að þá ríkir traust á því regluverki sem við höfum hér. Síðan er það hitt sem er líka mikilvægt að hafa í huga í vinnunni, að það er sjaldgæft að rýni af þessum toga leiði til íhlutunar í viðskipti. Markmiðið er að greiða fyrir, eins og ég segi, fjárfestingu sem hefur jákvæð áhrif og tryggja að það sé regluverk sem setji ekki fleiri hnökra á en nauðsynleg þörf er á með tilliti til þjóðaröryggis. Þess vegna þykir mér t.d. þessi ákvæði um leiðbeiningarskyldu, að það sé hægt að leita leiðbeininga, vera gríðarlega mikilvæg vegna þess að það flýtir fyrir, eins og hér hefur verið nefnt sem dæmi, og þetta er það sem fyrirtæki vilja gjarnan að farið sé ofan í.
Aðeins þetta, að þegar ég í upphafi lét í ljós þá ósk mína að málið fengi skjóta meðferð og ýfði einhverjar fjaðrir þar, þá ætla ég nú bara að árétta að ég var nú bara að gera mér vonir um að málið yrði klárað fyrir þinglok í vetur. Það var nú ekki flóknara en það og ég ætla að halda mig við þá skoðun mína að ég tel að það dugi nefndinni til að fara vel og örugglega yfir málið. Það hefur verið vel unnið, mikið af gögnum til og ég veit að embættismenn og sérfræðingar sem hafa komið að málum eru auðvitað meira en reiðubúnir að koma um leið og nefndin kallar til að fara vel yfir það mál. En ég bara þakka umræðuna og hlakka til að fylgjast með framvindu þessa máls.