búvörulög.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra fyrir framsögu um frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum. Það er ýmislegt sem kemur upp í hugann við lestur frumvarpsins en ég ætla aðeins að takmarka mig í þessu samtali við ráðherrann. Það vekur margt athygli mína og mig langar að spyrja í mínu fyrra innleggi um hlutverk og heimildir Samkeppniseftirlitsins (Gripið fram í.) sem eru að hluta til skrifaðar inn í búvörulög, sem mér finnst óeðlilegt. Í raun og veru má alveg halda því fram að þær heimildir samkvæmt frumvarpinu, fari það óbreytt í gegn, geti að mínu viti jafnvel núllað út þær undanþágur sem þetta á að kveða á um. Mig langar aðeins að ræða hérna hvíta kjötið, alifugla- og svínaslátrun. Ég sé ekki betur en að aðilar sem eru í þeirri framleiðslu þurfi að sækja um að vera framleiðendafélag. Þarna finnst mér gæta ójafnræðis. Þetta felur í sér ansi mikið flækjustig, sérstaklega fyrir þau fyrirtæki sem slátra t.d. bæði nautgripum, sauðfé og svínum og svoleiðis. Hvers vegna er þetta gert? Ég er búin að lesa frumvarpið í gegn og greinargerðina a.m.k. tvisvar sinnum. Ég sé enga skýringu, ekki einu sinni í greinargerðinni, á því hvers vegna þetta er gert. Hvers vegna er verið að gera upp á milli kjötgreina? (Forseti hringir.) Hver er ástæðan fyrir þessari breytingu? Af hverju er verið að taka hvíta kjötið svona út?