157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

búvörulög.

374. mál
[17:40]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir andsvarið. Aðeins stuttlega um þá athugasemd hv. þingmanns að það væri sérstakt að hafa þessi ákvæði um eftirlit Samkeppniseftirlitsins í búvörulögum. Það er auðvitað þannig að undanþága frá gildandi samkeppnisrétti er í búvörulögunum. Það er því í hæsta máta eðlilegt ef 11. gr. samkeppnislaga um undanþágur er ekki talin nægilega víðtæk, nægilega góð, nægilega sterk til að tryggja það sem við viljum tryggja í landbúnaði að þá fari það inn í búvörulögin, þar með hlýtur eftirlitið að fara þangað inn núna. Það verður ekki bæði haldið og sleppt í þessum efnum.

Ágæt spurning hv. þingmanns um hvíta kjötið og það er rétt sem kemur fram í máli hennar að bændur í hvíta kjötinu geti sótt um að gerast framleiðendafélög. Í grunninn er svarið við því hvers vegna frumvarpið tekur ekki á hvíta kjötinu það að ég er þeirrar skoðunar, og ég hygg að við séum það flest, að víðtækar undanþágur frá ákvæðum samkeppnislaga í atvinnurekstri eigi ekki að vera léttvægar. Það þarf að liggja þar að baki einhver skilningur, einhver skoðun á stöðunni sem viðkomandi atvinnugreinar búa við. Ég er þeirrar skoðunar að framleiðsla á hvítu kjöti sé þar í grundvallaratriðum ólík sauðfjárbúskap eða mjólkuriðnaði eða öðru slíku. Þar liggur munurinn. Hafi menn hug á að sækja um slíkar undanþágur þarf að uppfylla þetta skilyrði um að sækja um að gerast framleiðendafélag. Það er til að tryggja að samkeppnisheimildin eða undanþágan sem sóst er eftir nái eingöngu til þeirra framleiðslu en ekki til víðtækrar annarrar atvinnustarfsemi, eins og auðsýnt er að hægt væri ef þetta væri algjörlega opið. Þannig liggur málið. (Forseti hringir.) Það verður bara mjög áhugavert, verð ég að segja, því ég bind vonir við að þetta mál fari í gegn, að sjá hvort þetta muni skila sér þannig að bændur muni fá meiri ítök þarna.