búvörulög.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég er enn þeirrar skoðunar að hér sé ekki verið að gæta jafnræðis. Mér finnst furðulegt að það sé verið að gera upp á milli kjötgreina. En gott og vel, fyrst ég er í samtali við ráðherra þá langar mig að fara út í annað mál. Undanþága frá samkeppnisreglum gildir fyrir annars vegar framleiðandafélög og hins vegar afurðastöðvar. Undanþágur frá samrunaeftirliti eru teknar út varðandi afurðastöðvar. Afurðastöðvar sem hygðust sameinast færu því í gegnum hefðbundið ferli, eins og ég skil þetta. Hins vegar er það ekki skýrt í lagatextanum og mér finnst nauðsynlegt að það sé skrifað skýrt í lagatexta að sú breyting hafi ekki og muni ekki hafa áhrif á þær einingar sem hafa orðið til á grundvelli núgildandi laga. (Forseti hringir.) Það væri mjög til bóta ef það væri skrifað inn í sjálf lögin eða greinargerð að þetta hafi ekki áhrif á þær einingar sem hafa orðið til á grundvelli gildandi laga.