157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

búvörulög.

374. mál
[17:48]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir andsvarið og góðar vangaveltur sem eru svo sem í anda þess sem við ræddum hér fyrr í dag. Þetta er auðvitað frekar, ef ég má leyfa mér að segja það, ef aðilar máls eru sammála um mikilvægi samkeppni, samkeppnislaga og samkeppniseftirlits, tæknilegt útfærsluatriði hvar því er fyrir komið í lögunum, ef svo má segja. Í núgildandi ákvæði búvörulaga um mjólkina er ekkert fjallað sérstaklega um eftirlitshlutverk eða viðurlagaheimildir Samkeppniseftirlitsins og að mati eftirlitsins er það sem kemur fram um eftirlitið í 71. gr. ekki nægilega skýrt. Þau telja sig ekki hafa nægilega skýrar heimildir. Það er ekki það sama og þau telji sig ekki hafa nægilega miklar heimildir, þau telja einfaldlega heimildina í núgildandi lögum ekki nægilega skýra. Það er náttúrlega gagnrýnivert ef það er upplifunsin og staðreyndin. Þess vegna er í þessu frumvarpi tillaga um að skýra eftirlits- og viðurlagaheimildir vegna undanþága þannig að það sé hægt að stíga inn í og fylgjast með því af hálfu eftirlitsins hvort þau fyrirtæki sem njóta þeirrar miklu sérstöðu að vera undanþegin lögum okkar um samkeppni séu að fylgja þeim ramma sem þeim er búinn. Undanþága afurðastöðva í mjólk og slátrun tiltekins búfjár er sem sagt víðtækari og þess vegna viljum við geta fylgt þessu eftir. En ég tek heils hugar undir með hv. þingmanni að það er mjög slæmt ef ákvæði til skýringar er ekki nógu skýrt. Þá tel ég að nefndin ætti að fara vel ofan í þau mál. En þetta er grunnurinn að því að við búum til skýran ramma utan um þessa starfsemi.