búvörulög.
Herra forseti. Ég þakka aftur andsvarið og tek bara undir þetta. Ég er sannfærð um að við náum samstöðu þarna. Og af því að í fyrirspurninni í morgun var nefnt dæmi um það þegar MS og Samkeppniseftirlitið tókust á fyrir einhverjum árum, þá var það nákvæmlega þannig, það var óskýrleiki. Ef ég man rétt taldi MS sig vera að vinna innan ramma laga og þetta eru bara hlutir sem við þurfum að hafa í lagi. Við þurfum að hafa samkeppnislögin okkar í lagi. Við þurfum að tryggja hér samkeppni og hag þeirra sem eiga hagsmuna að gæta. Í þessu tilfelli erum við að tala um bændur, við erum að tala um afurðastöðvar og við erum að tala um neytendur. En þá þurfa leikreglurnar að vera skýrar og eftirlitsheimildirnar skýrar og sá aðili sem ber þá ábyrgð að hafa eftirlit þarf að hafa skýra heimildir og geta unnið eftir þeim, þannig að ég treysti því að nefndin muni taka þetta fyrir og ég veit að hv. þingmaður mun taka boltann þar.