157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

búvörulög.

374. mál
[17:56]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég minni hæstv. ráðherra á að það er dómafordæmi sem sýnir fram á 11. gr. heldur, bara svo því sé haldið til haga. Varðandi framleiðandafélögin þá veldur það þeim sem hér stendur áhyggjum, eftir að hafa lesið yfir þetta, að ég fæ ekki betur séð, og ráðherra leiðréttir mig ef um misskilning er að ræða, að Samkeppniseftirlitið verði bæði skráningaraðili, eftirlitsaðili og úrskurðaraðili. Það mætti þýða á íslensku sem ákærandi, dómari og böðull. Ég velti því fyrir mér hvort hæstv. ráðherra þyki það eðlilegt að þetta sé allt saman, öll þessi völd, á hendi Samkeppniseftirlitsins.