157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

búvörulög.

374. mál
[18:15]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Sömuleiðis hefur mér fundist ræður hv. þingmanna og andsvör vera bæði málefnaleg og upplýsandi. Þegar ég lít á stóru myndina í þessu, sem er kannski ekkert svo stór af því að við erum fámenn þjóð, held ég að það hafi sjaldan verið jafn mikil samstaða um það að menn vilji viðhalda íslenskri landbúnaðarframleiðslu. Það er áhugavert að sjá það. Ég hef ekki séð kannanir en mér finnst umræðan hafa þróast þannig að fólk sé farið að meta það meira en það gerði áður vegna þess að alla vega hér áður fyrr var umræðan oft neikvæð og tengdist líka öðrum þáttum, kannski líka vegna þess að búum hefur fækkað svo gríðarlega mikið að menn hafa fundið fyrir því að þar sem fólk fer úr sveitum þá verður það annað samfélag, ekki bara fámennara heldur sömuleiðis er það öryggismál ef við erum með stóran hluta landsins þar sem dreifbýli er mjög mikið.

Það er harla ólíklegt að íslenski landbúnaðurinn, sem er heimskautalandbúnaður, nái nokkurn tíma að geta keppt á alþjóðamarkaði út frá verði, af augljósum ástæðum, bæði náttúrlega vegna þess að við erum þar sem við erum og sömuleiðis út af fámenninu. Hins vegar geta íslenskur landbúnaður og heimskautalandbúnaður keppt í gæðum. Ég tek undir með hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni þar sem hann talaði um mikilvægi þess að við vitum hvað við erum að kaupa. Við sjáum líka að landbúnaðarvörur almennt, tökum grænmeti sem dæmi — alla vega sýnist mér svo þegar ég kaupi það grænmeti að það sé oft erfitt að fá það vegna þess að það selst allt upp, sem er hið besta mál og ánægjulegt að sjá þegar slíkt gerist. Ég er samt þeirrar skoðunar að lausnin á vanda landbúnaðarins felist í því að bændur fái meiri peninga. Þetta er ekkert rosalega flókið. Ég hef aldrei skilið, t.d. þegar kemur að sauðfjárbúskap, að það sé eitthvert sérstakt markmið stjórnvalda og allra að halda verðinu eins lágu og mögulegt er. Ég er nú með það sérkennilega áhugamál að alls staðar sem ég fer þá fer ég í matvörubúðir og sérstaklega kjötborð, og sömuleiðis þegar maður sér fiskborðið — íslenskt lambakjöt hefur lengst af verið mjög ódýrt miðað við lambakjöt sem maður sér í stórmörkuðum annars staðar. Þetta hefur breyst. Lambakjöt hefur hækkað mjög í verði en það er engin umræða um það. Það tel ég bara jákvætt því að það hefur verið alveg fáránlega lágt verð sem bændur hafa fengið fram til þessa. Reyndar hafa einhverjir tekið mismuninn vegna þess að það er búið að vera þannig í alla vega tíu eða 20 ár að þegar maður fer á veitingastað í Reykjavík eða annars staðar er verð á nautakjöti og lambakjöti á matseðli nokkurn veginn það sama. Stundum er lambakjöt meira að segja dýrara. Hins vegar hefur afurðaverðið eða það sem fer til bænda verið miklu lægra. En gott og vel.

Ég las aðeins í greinargerðinni hérna um það að árið 2004 hefðu verið gerðar breytingar sem sneru að mjólkuriðnaðinum. Ég man það reyndar nokkuð vel vegna þess að það var svolítið sorgarferli fyrir fólk sem hafði tengsl við og tilfinningar til Borgarness, sem ég geri, að mjólkursamlagið þar var úrelt. Ég er ekkert alveg viss um að það hafi verið heillaspor. Ég hef að vísu efasemdir um það. En það sem ég er að segja er að þegar menn líta til þessara þátta þarf að líta til fleiri þátta en bara varðandi hvaða meintu hagræðingu sé hægt að ná með því að skipuleggja alla starfsemina. Það er alveg rétt sem kemur fram hjá hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni að þetta fyrirkomulag sem er til staðar, sem gengur í rauninni út á að þú getir haft afurðastöðvar langt frá býlum og í rauninni langt frá stórum mörkuðum, gerir það að verkum að þú getur haft þessa stórkostlegu starfsemi, því að hún er stórkostleg, í Örnu á Vestfjörðum og ég held að menn séu ekki að nálgast það með neinni neikvæðni. En þegar menn fóru í þetta 2004 með mjólkina var alveg skýrt að menn töldu að þeir fengju mjög mikla samkeppni erlendis frá. Auðvitað vitum við að íslenskar afurðastöðvar og allt sem snýr að þessari framleiðslu er miklu minna en það sem við er að keppa erlendis frá.

Þú nærð hins vegar ekki nokkurn tíma að búa til hið fullkomna fyrirkomulag og ég skil að hæstv. ráðherra sé hér að koma fram með frumvarp til að ná göfugum markmiðum. Áhyggjur mínar eru hins vegar þær að ég get ekki séð að þetta frumvarp nái þeim markmiðum að einfalda regluverk. Ég hef sömuleiðis áhyggjur af að þarna sé verið að framselja vald til Samkeppniseftirlitsins. Það getur ekki verið auðvelt fyrir Samkeppniseftirlitið að fá sífellt fleiri verkefni. Ef ég skil rétt er að vísu gert ráð fyrir að það fái meiri fjármuni til að sinna því en peningarnir koma nú einhvers staðar frá, þeir koma ekki af himnum ofan þannig að það hefur allt saman áhrif. Hér er um valdframsal að ræða til Samkeppniseftirlitsins og það er ekki gott ef það eru ekki skýrar reglur. Sama hvað mönnum finnst um það hvað eigi að vernda mikið og hvað menn eigi að ganga langt í að koma í veg fyrir samþjöppun eða hvaða markmið sem við höfum er áhyggjuefni þegar við erum alltaf að flækja reglugerðaumhverfið. Það hlýtur líka að vera áhyggjuefni fyrir þá aðila sem ætla að taka þátt í þessu rekstrarumhverfi að ef reglurnar eru ekki skýrari en svo, og það er mat Samkeppniseftirlitsins eftir að hafa skoðað það að þetta megi ekki ganga fram, geti Samkeppniseftirlitið snúið því öllu við.

Mér finnst vanta nokkuð hugsunina í þetta sem maður sér hjá mörgum öðrum þjóðum. Það var frétt núna í Financial Times um að það hefði verið skipt um forystu í samkeppniseftirlitinu vegna þess að samkeppniseftirlitið hugaði ekki nægilega vel að hagvexti. Við þurfum að mínu áliti að innleiða þá hugsun meira í það fyrirkomulag sem við erum með að við séum að líta til þátta sem eru nauðsynlegir, hvort sem það er hagvöxtur eða samkeppnishæfni, og einföldun regluverks. En ríkisstjórnin hefur verið nokkuð dugleg að flækja regluverk og ansi hressilega núna á síðustu vikum. Menn geta haft allar skoðanir á gjaldtöku af bílum en það að flækja regluverkið eins og gert var fyrir jólin er bara sokkinn kostnaður sem engum nýtist.

Ég ætla ekki að segja neitt annað en það að ég held að það sé mikilvægt að hv. nefnd fari yfir þetta frumvarp. Mér sýnist að umræðan hjá öllum þeim hv. þingmönnum og hæstv. ráðherra sem hér eru miði að því að reyna að gera þetta eins vel og mögulegt er og ég get ekki séð að menn séu komnir í neinar skotgrafir, í það minnsta núna þegar þetta er komið hér fram. En mitt innlegg í þetta er að áhyggjur mínar eru þær og ég er búinn að sjá hvernig reglugerðafarganið okkar hefur tútnað út. Það er það sem við höfum gert og við erum komin með mjög flókið reglugerðaumhverfi. Ef við værum ekki með neitt reglugerðaumhverfi hefðum við aldrei gert þetta svona, aldrei nokkurn tíma. Það er alveg útilokað. Og þetta er ekki útflutningsvara, það fyrirkomulag sem við erum búin að koma á laggirnar. Ég hef áhyggjur af því, burt séð frá því hvað menn vilja ganga langt í vernd, hvað menn vilja ganga langt í að geta farið gegn hugmyndum þeirra laga sem samkeppnissviðið byggir á varðandi það að heimila aðilum að vinna saman og þar af leiðandi vera ekki í samkeppni, sem er svo sannarlega oft réttlætanlegt til að ná öðrum markmiðum, burt séð frá því hvað mönnum finnst um það, er erfitt að lesa úr þessu frumvarpi annað en að hér séum við að flækja regluverkið og að regluverkið verði óljósara ef við samþykktum þetta á morgun en það var fyrir. Ég held að það væri slæmt ef við myndum stíga slík skref. En ég treysti því og trúi að hv. þingnefnd skoði þetta vel og komi þá með frumvarpið aftur inn í umræðu og við getum þá vonandi verið með betri upplýsingar þegar fleiri aðilar eru búnir að koma að þessu, bæði umsagnaraðilar og hv. þingmenn, þannig að við getum haldið áfram að kryfja málið áður en það verður klárað.