157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.

296. mál
[18:51]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég er næstum því viss um að við hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir höfum átt orðastað um þetta áður en mér er bæði ljúft og skylt að fara yfir þá punkta aftur.

Til að svara fyrri spurningunni fyrst, hvort þörf sé fyrir þetta frumvarp, þá tel ég svo vera. Þörfin kemur fyrst og fremst af því að meðferð umsókna hjá Rannís hefur tekið allt of langan tíma. Sú hugmynd að heimila Rannís að veita styrki til lengri tíma til minni verkefna snýst raunverulega um að draga úr skriffinnskunni eða stjórnunarkostnaðinum við að úthluta styrkjum. Þess vegna liggur á því. En eins og kom fram í máli mínu eru aðrar breytingar ekki verulegar.

Til að svara síðari spurningunni þá eru sem sagt engin tengsl milli breytinganna sem gerðar voru á áætluðum kostnaði vegna þessa liðar í fjárlögum og þessa frumvarps. Enginn, svo ég undirstriki það aftur, ekkert samhengi þar á milli. Breytingin á áætluninni í fjárlögum skýrist eingöngu af niðurstöðu úthlutunar ársins 2025 sem var minni en gert var ráð fyrir. Við höfum farið í einhverja greiningu á því hvers vegna það er. Það er hugsanlegt, og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir þekkir auðvitað forsögu þessa máls, að það sé að einhverju leyti búinn sá kúfur sem kom í gegn til að byrja með. Ég, eins og hv. þingmaður, er mikill aðdáandi þessa fyrirkomulags og tel það á allan hátt mjög gott.

Svo ég dragi þetta vandlega saman: Þetta frumvarp breytir engu um áætlanir okkar um úthlutun. Raunar eru einu fjárhagslegu áhrifin óveruleg og hafa þá fyrst og fremst með kostnað vegna umsóknanna sjálfra hjá Rannís að gera. En mikilvægið snýst um það að vinna á þessum langa svarfresti sem er algjörlega óásættanlegur fyrir nýsköpunarfyrirtækin þannig að Rannís geti unnið hraðar (Forseti hringir.) og lausnin er sú að minni fyrirtækin þurfa ekki að sækja um nema annað hvert ár.