stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir ágæta umfjöllun um mikilvægi hugverkadrifins hagvaxtar og ég tek undir með henni að þetta hefur verið mjög kærkomin viðbót við íslenska hagkerfið. Í mínum fyrri störfum talaði ég oft og lengi um mikilvægi útflutningsliðarins „Annað“ af því að Hagstofan hafði ekki enn þá uppfært skilgreininguna og tek undir að þetta er geysilega jákvæð viðbót við íslenska hagkerfið. En nú er það auðvitað þannig að alveg eins og hv. þingmaður nýtir þetta tækifæri til að gagnrýna samráðsleysi annarra frumvarpa en þessa þá get ég leyft mér að víkja að því að raunar hófst þessi vegferð á tíma ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar sem ég ætla svo sem ekkert endilega að segja að sé skilyrði fyrir því að þetta sé einhvern veginn betra mannanna verk en annað en sé þó ástæðu til að draga það hér fram að þarna náum við mjög vel saman.
Það er hins vegar mjög mikilvægt að halda því til haga að uppbygging þessa iðnaðar hófst auðvitað löngu þar á undan. Stuðningskerfi eru ágæt en þau eru á endanum ekki uppspretta nýsköpunar. Hana sækjum við eitthvert annað, inn í menntakerfið, inn í hugarfar íslensku þjóðarinnar og ég hef nú stundum sagt að engin auðlind sé mikilvægari og stærri íslensku þjóðinni en óraunhæf bjartsýni Íslendinga.
En mig langar til að spyrja hv. þingmann út í það sem ég vék að í þeim andsvörum sem ég veitti hér áðan varðandi það annað sem við getum gert til að auðvelda nýsköpun og þá kannski á miklu breiðari grunni en bara það sem snýr að nákvæmlega þessari tegund rannsóknadrifinnar nýsköpunar, sem er þá hreinlega að auðvelda fólki að stofna fyrirtæki og tryggja að ytri skilyrði séu stöðug vegna þess að það þarf auðvitað að halda því til haga að þessi fyrirtæki, öfugt við auðlindadrifnu fyrirtækin, ráða illa við miklar sveiflur í raungengi.