157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.

296. mál
[19:12]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir svarið. Ég verð að viðurkenna að mér finnst skrýtið að hún telji það samstofna hugtök, evran og stöðugleiki.(Gripið fram í.) Nei, ég var ekki að vísa til þess. Ég var beinlínis að spyrja um sveiflur í raungengi og þykir þá enn þá athyglisverðara að hv. þingmaður hafi umsvifalaust dregið þá ályktun að ég væri að tala um einhvern annan gjaldmiðil en krónuna. En mig langar til þess að svara spurningunni þótt þetta sé kannski svolítið að snúa andsvörum á haus og segja: Ég er mjög hlynntur þessu stuðningskerfi og held að það hafi verið mikið happaskref. Ég held hins vegar að það þurfi að víkja að mörgu öðru og ástæðan fyrir því að ég gerði stöðugleikann hérna að umtalsefni, og þá sérstaklega sveiflurnar í raungenginu, er að þessi fyrirtæki eru ekki að sama skapi háð því að vera hér. Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki fara ekki langt frá auðlindinni. Íslenskt ferðaþjónustufyrirtæki selur aðgang að Íslandi. Íslensk stóriðja er hér vegna orku og stöðugleika í öflun og veitingu hennar. Íslenskur leikjaframleiðandi eða íslenskt hugvitsfyrirtæki almennt gæti í sjálfu sér verið hvar sem er. Það er auðvitað gott að vera með stuðningskerfi en á endanum hljótum við að þurfa að vera sammála um það að ytri stöðugleikinn er lykillinn. Menn geta auðvitað spurt sig þeirrar spurningar hvort skringileg aukaverkun af þeim stöðugleika sem varð hér eftir bankahrunið, sem til kom vegna mjög stífs aðhalds utan um ytri skilyrði og í raun gjaldeyrishafta, varð raunverulega að lokum þessi mikla uppspretta nýsköpunarfyrirtækja, af því að það er athyglisvert.