157. löggjafarþing — 54. fundur,  14. jan. 2026.

stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.

296. mál
[19:14]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég verð enn og aftur að segja það sem við sum hver höfum sagt, að mikið var nú hæstv. ráðherra góður í sínum fyrri störfum. Nú hefði ég verið til í að sitja í tíma uppi í háskóla og ræða við prófessor um nákvæmlega það sem hann kom inn á hér. Ég fagna því að hæstv. ráðherra segist styðja stuðningsumhverfi en ég heyri samt sem áður þetta en og það er alveg hægt að hafa einhvern smá skilning á því, sko, ég meina stuðningsumhverfi er ekki allt, ég tek alveg undir það. Ég man ekki alveg hvernig hæstv. ráðherra orðaði það hér áðan en það var eitthvað á þá leið að væntanlega væri mesta auðlindin falin í íslenskri ofurbjartsýni eða eitthvað sirka þannig. Það held ég að sé nú að hluta til nákvæmlega málið og ég minnist þess, það er orðið svolítið síðan, að hafa lesið einmitt rannsóknir og alls konar vangaveltur sérfræðinga um af hverju væri þetta frumkvöðlaeðli sem er töluvert mikið af á Íslandi. Ég held að það snúist nákvæmlega að því að við kunnum að vera ofurbjartsýn. Við kunnum að lifa á þessari eyju og takast á við það sem hér dynur á okkur og það sé hluti af því að vera frumkvöðull og vera tilbúinn að berjast og koma hlutunum áleiðis. En eins og hæstv. ráðherra segir þá geta einmitt svoleiðis fyrirtæki, hvort sem það eru leikjafyrirtæki eða lyfjaframleiðendur eða ég veit ekki hvað okkur dettur í hug, staðsett sig annars staðar. Við eigum reyndar líka mjög mikið af nýsköpunarfyrirtækjum sem hafa orðið til einmitt út af auðlindunum okkar. Tökum Kerecis sem dæmi sem er að nota einhverja afganga í alls konar fæðubótarefni og lyf og hitt og þetta, þar sem er verið að nýta hluta úr auðlindahagkerfinu okkar og verða til einmitt nýsköpunarfyrirtæki þess vegna. Þess vegna hefur verið svo mikilvægt að leggja áherslu á nýsköpunarfyrirtæki sem byggjast út frá okkar sérfræðiþekkingu. Ég ætla bara að leyfa mér að segja, og það er það sem ég var að reyna að fiska eftir hjá hæstv. ráðherra, því ég man eftir umræðunni þegar ég var að vinna í nýsköpunargeiranum og (Forseti hringir.) hún var stöðugt frá Evrópusambandssinnum að eina svarið fyrir nýsköpunarfyrirtæki væri einhvern veginn að ganga inn í Evrópusambandið. Þá vil ég bara velta upp þeirri spurningu: Bíddu, hvernig gengur Evrópusambandinu í dag í nýsköpun og þróun? Eru þeir framarlega á heimsvísu? Því miður er svarið við því nei.