157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

Störf þingsins.

[10:32]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V):

Virðulegi forseti. Ég er, eins og fleiri, aðstandandi íbúa á hjúkrunarheimili sem hefur notið þar alveg fyrirmyndarþjónustu og einstakrar greiðvikni. Pabbi bjó á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ í tæp tvö ár og var í raun heppinn að fá þar inni miðað við þá stöðu sem var í hjúkrunarheimilismálum fyrir um tveimur árum síðan. Mér finnst umræðan um hjúkrunarheimili oft og tíðum einkennast af erfiðri mönnun, vöntun á hjúkrunarrýmum og því tengdu. Það er vissulega áskorun sem þarf að takast á við en gleymum ekki hvað við erum heppin með þau hjúkrunarheimili sem við eigum í dag og heppin með það góða starfsfólk sem þar starfar og er að sinna sínu starfi við oft mjög flóknar og erfiðar aðstæður. Ekki vegna þess að aðstaðan sé slæm heldur vegna þess að íbúar eru á mjög mismunandi stað í sínu lífi og þurfa oft og tíðum mjög krefjandi þjónustu.

Það er staðreynd að starfsfólk hjúkrunarheimila er af ýmsum og ólíkum þjóðernum og eiga það sum sameiginlegt, þrátt fyrir ólíkan bakgrunn, að leita hingað til Íslands til þess að búa í góðu og öruggu samfélagi, eitthvað sem sum þeirra hafa ekki getað notið í þeim löndum þar sem þau eru fædd. Hér njóta þau lýðræðis, mannréttinda og réttlætis. Af samtölum mínum við starfsfólk af erlendum uppruna sem sinnti pabba eru þau gríðarlega þakklát fyrir það tækifæri sem þau hafa fengið í íslensku samfélagi. En ég er líka þakklátur fyrir að þau hafi valið að koma til Íslands og starfa við að sinna m.a. pabba mínum sem naut þjónustu þeirra og aðstoðar sem þau veittu honum alla daga með bros á vör. Ég og fjölskylda mín eigum starfsfólki hjúkrunarheimilisins Ísafoldar mikið að þakka og þannig er það með margar aðrar fjölskyldur sem treysta á þjónustu hjúkrunarheimila víða um land.