157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

Störf þingsins.

[10:37]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Það er hlutverk hverrar ríkisstjórnar að tryggja fæðuöryggi þjóðar. Fæðuöryggi er á góðum stað þar sem til staðar er hæfni og geta samfélags til að framleiða, vinna, dreifa og geyma matvæli með traustum grunninnviðum sem haldast órofnir þegar á reynir. Þetta styður við mikilvægi þess að öflugur landbúnaður sé stundaður um allt land og liður í því er hagstætt rekstrarumhverfi framleiðenda. Við þekkjum þá grundvallarbreytingu sem varð þegar mjólkurbændum var heimilað að vinna saman, heillaspor sem hefur styrkt grunn mjólkurframleiðslu á Íslandi, tryggt neytendum vöruframboð og aukið vöruþróun og fjárfestingar. Mjólkurbændur standa mun betur en áður því þeir uppskera meira fyrir sína framleiðslu. Með lagabreytingu Alþingis á búvörulögum 2024 þar sem leyft var samstarf og samruni og hagræðing í framleiðslu á kjöti var búist við að þróunin yrði svipuð og hjá mjólkurbændum.

Nú eru hins vegar blikur á lofti með frumvarpi atvinnuvegaráðherra um breytingu á búvörulögum sem í gær var vísað til atvinnuveganefndar eftir 1. umræðu hér í þinginu. Fari þetta frumvarp í gegn óbreytt er okkur alvarlegur vandi á höndum. Það er augljóst við lestur frumvarpsins og greinargerðar þess að það er samið með beinni aðkomu Samkeppniseftirlitsins sem raunar hefur ekki farið leynt með andstöðu sína við gildandi rekstrarumhverfi landbúnaðarins. Ég tel óeðlilegt að hlutverk og heimildir Samkeppniseftirlitsins séu skrifaðar að hluta í búvörulög. Þær heimildir sem færðar eru til Samkeppniseftirlitsins í frumvarpinu eru yfirgengilega víðtækar og þurrka raunar út undanþágur fyrir utan að Samkeppniseftirlitið hefur allar þær heimildir sem það þarf. Er leikurinn gerður til þess að þurrka út undanþágur? (Forseti hringir.) Er það ekki það sem Samkeppniseftirlitið hefur unnið að leynt og ljóst með vinum sínum í Viðreisn? (Forseti hringir.)

Það er margt við frumvarpið að athuga sem þarfnast yfirlegu og er verkefni atvinnuveganefndar þess vegna ærið.