Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að segja eins og hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, að við erum ósammála um margt en við erum líka sammála um margt. Ég held við séum sammála um það að vilja að hér á landi sé blómleg byggð úti um allt land, að á Íslandi ríki búsetufrelsi og atvinnuvegir geti blómstrað úti um allt land. Til að svo megi verða þurfa innviðir að vera eins öflugir og þeir geta orðið úti um allt land og hef ég sagt áður í þessum sal að ég held að innviðastefna sé besta byggðastefnan. Fljótlega mun fara fram fyrri umræða um samgönguáætlun sem snýst akkúrat um þetta, að tryggja það að úti um allt land geti verið blómleg byggð. Sitt sýnist hverjum. Um er að ræða forgangsröðun mikilvægra framkvæmda og það er alltaf erfitt. Það kemur alltaf upp í umræðunni, sérstaklega í tengslum við jarðgöng: Af hverju getum við ekki borað fleiri en ein jarðgöng í einu? Af hverju getum við ekki gert eins og vinir okkar Færeyingar? Þeir hafa borað talsvert meira af kílómetrum á hvern íbúa en við hér á Íslandi og jafnframt hafa Norðmenn borað miklu fleiri kílómetra á hvern íbúa en við hér á Íslandi. Erfiðasti hjallinn við innviðauppbyggingu er kostnaðurinn við hana. Við viljum fjárfesta í mörgum innviðaframkvæmdum á sama tíma og þetta eru tímafrekar framkvæmdir og helsta hindrunin sem við stöndum frammi fyrir þar er fjármagnskostnaður. Til að mynda kemur fram í skýrslu um Fjarðarheiðargöng og Fjarðagöng, sem gefin var út af RHA:
„Þegar þetta er skrifað er ávöxtunarkrafan á lengstu verðtryggðu ríkisskuldabréfum um 2,6% […] Hjá nágrönnum okkar í Evrópu er víða notaður ávöxtunarstuðullinn 3%–4% en þess ber að geta að þar er raunávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfa alla jafna lægri en á Íslandi. […] Fjármagn er einfaldlega dýrara í íslenskum krónum en í stórum vestrænum gjaldmiðlum, sérstaklega ef miðað er við evru sem er næststærsti gjaldmiðill heims.“
Um þetta snýst m.a. sú þjóðaratkvæðagreiðsla sem við munum ganga til (Forseti hringir.) fyrir lok árs 2027. Það er þessi mikli fjármagnskostnaður sem við stöndum frammi fyrir á Íslandi með íslensku krónuna (Forseti hringir.) sem m.a. stendur í vegi fyrir því að við getum ráðist í stórar innviðaframkvæmdir úti um allt land.
(Forseti (EÁs): Forseti minnir hv. þingmenn á að ræðutíminn er tvær mínútur undir þessum lið.)