Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Veður eru válynd í heiminum. Sú heimsmynd sem við Íslendingar höfum búið við síðustu áratugi hefur tekið miklum breytingum á stuttum tíma. Núverandi ríkisstjórn hefur tekið stöðu Íslands í þessum breytta veruleika föstum tökum og umræða um þjóðaröryggi er orðin allt önnur en hún var fyrir örfáum árum. Íslendingar taka virkan þátt í umræðu um öryggis- og varnarmál og fleiri gera sér grein fyrir því að við þurfum að vera betur undirbúin fyrir óvissu og áskoranir framtíðarinnar. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar var sett skýrt markmið um að móta heildstæða öryggis- og varnarstefnu og er sú vinna nú í fullum gangi. Tillaga sem unnin var af hópi fulltrúa allra stjórnmálaflokka er nú til umfjöllunar í utanríkismálanefnd og fjöldi umsagna ber vott um mikinn og eðlilegan áhuga á stefnunni. Þessi stefna er mjög vel unnin og mjög gott að sjá hvernig þingið getur unnið saman þvert á alla flokka í slíkum málum.
Í umsögn frjálsra félagasamtaka um málið vakti athygli mína ábending um að þótt fjallað sé um mikilvæga innviði, eins og samgöngur, fjarskipti, orku, fæðuaðföng og heilbrigðisþjónustu, þá vanti einn lykilinnvið, menntakerfið. Þegar áföll dynja á samfélagi verðum við að tryggja að börn hafi áfram aðgang að skólum, sem eru grundvallarstoðir samfélagslegs stöðugleika. Í þessum veruleika hefur áherslan eðlilega verið á öryggi og varnir en við megum ekki gleyma friði. Í stjórnarsáttmála er lögð áhersla á utanríkisstefnu sem byggir á mannréttindum, friði, virðingu fyrir alþjóðalögum og náinni samvinnu við stofnanir og vinalönd. Til að ná því fram skiptir þróunarsamvinna miklu máli. Ríkisstjórnin hefur staðið með okkar stefnu í þróunarsamvinnu og þar má ekki hvika. Mjúkt vald, þ.e. aðgangur að menntun, mat, heilbrigðisþjónustu og öryggi, er besta vörnin gegn átökum. Við eigum sérstaklega að standa áfram með réttindum kvenna og með ályktun Sameinuðu þjóðanna nr. 13/25, um konur, frið og öryggi. Konur halda samfélögum uppi í stríði (Forseti hringir.) og eru grundvallarstoð uppbyggingar í friði.