Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Fyrir 15 dögum tóku gildi ný lög um kílómetragjald. Mikilvægt er að innleiðingin gangi vel, að upplýsingagjöf sé góð og að tæknilegar hindranir verði ekki í veginum. Þegar svona umfangsmikil breyting er gerð er eðlilegt að margar spurningar vakni. Hvernig gengur að skrá bíla? Er kerfið að ráða við þann mikla fjölda ökutækja sem þarf að skrá kílómetrastöðu á? Hefur eldsneytisverð raunverulega lækkað? Hvað með ökutækjaleigurnar? Það er skemmst frá því að segja að innleiðingin hefur gengið vonum framar. Nú þegar hafa meira en 85% þeirra rúmlega 300.000 ökutækja sem lögin taka til verið skráð og það eru ekki nema tæp 15% sem eru eftir. Það er eftirtektarvert hversu vel þetta fer af stað. Upplýsingagjöf og svörun fyrirspurna er til fyrirmyndar. Þjónustuborð Skattsins og island.is hafa staðið sig afar vel auk annarra aðila, t.d. Félag íslenskra bifreiðaeigenda, við að leiðbeina fólki og svara spurningum. Engin stór vandamál hafa komið upp og þau minni háttar atriði sem upp hafa komið hafa verið leyst jafnóðum. Flestum gengur vel að skrá ökutækin sín og upplifa ferlið einfalt. Þeir sem eiga helst í erfiðleikum eru einstaklingar sem hafa lítið notað stafræna þjónustu áður en í því geta líka falist tækifæri í að styðja fólk til að nýta betur island.is og aðrar stafrænar þjónustur. Unnið hefur verið markvisst með ökutækjaleigum að lausnum um safnreikninga, flutning bíla milli gjaldflokka og tæknilega útfærslu kerfa. Mesta spennan var um áramótin að fylgjast með þróuninni á eldsneytisverði og ég gat varla einbeitt mér að áramótaskaupinu af því að fyrsta fyrirtækið þjófstartaði og lækkaði verðið strax. En allt bendir til þess að eldsneyti hafi lækkað í samræmi við væntingar. Eftirlit með eldsneytisverði hefur einnig verið einfaldað þegar búið er að taka út opinberu gjöldin.
Virðulegur forseti. Við munum halda áfram að fylgjast vel með innleiðingunni. Eins og fram hefur komið er Ísland í fararbroddi við að taka upp kerfi sem skapar stöðugan og fyrirsjáanlegan tekjustofn af umferðinni til framtíðar svo að viðhaldið á vegakerfinu verði þannig að sómi sé að.