Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja mál mitt með því að óska Sigurjóni Þórðarsyni, nýkjörnum formanni fjárlaganefndar, til hamingju með nýja starfið. Ég mun, ásamt öðrum ábyggilega, reyna að aðstoða hann við að auka tekjur ríkisins á réttlátari hátt þannig að meira verði hægt að gera fyrir þá sem þurfa á þeirri hjálp að halda, eins og öryrkja og aldraða, sjúkrahúsin í landinu og menntamál, og til fleiri góðra verka í alls konar störfum, menningu og menntun. En ég myndi leggja það til að hann skoðaði tilboð frá Landssambandi smábátaeigenda þar sem þeir bjóðast til að borga 150 kr. fyrir kílóið af þorski plús veiðigjöld, sem þýðir raunverulega 210, 215 kr. fyrir kílóið sem þeir treysta sér til að borga sem stórútgerðin og hennar málsvarar hér á Alþingi börðust eins og ljón í vor og sumar á móti. Þess vegna segi ég að það sé fyrsta skref til þess að leiðrétta þessa hluti og hjálpa til við að auka tekjur ríkissjóðs, fyrir utan að það er hægt að setja það í lög að allur fiskur fari á fiskmarkað og við fáum hæsta verð. Það myndi hjálpa sérstökum sjávarútvegsbyggðarlögum (Forseti hringir.) með hækkun á útsvari upp á 40, 50%.