Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í vikunni tók ég við formennsku í atvinnuveganefnd, sem verður spennandi verkefni að sinna eftir nokkurra ára hlé. Atvinnumálin eru mér mjög hugleikin, bæði út frá uppbyggingu atvinnulífs um land allt og fjölbreytileika og nýsköpun og einnig út frá því að sköpuð séu fjölbreytt og vel launuð störf um allt land sem standa undir góðum búsetuskilyrðum hvar sem er á landinu.
Við þurfum að byggja atvinnulíf okkar á sem flestum stoðum og megum ekki setja öll egg í sömu körfuna eins og oft hefur verið hér á Íslandi. Við þurfum að byggja á fjölbreyttu fyrirtækjamynstri og tryggja að lítil og meðalstór fyrirtæki geti blómstrað og séu samkeppnisfær við stórfyrirtækin sem í krafti fjármagns eru í allt annarri stöðu. Regluverk sem á fullan rétt á sér gagnvart stórfyrirtækjum er ekki alltaf sanngjarnt gagnvart minni fyrirtækjum sem búa við allt annan veruleika og þurfa stuðning við að byggja upp og skapa sér rekstrargrundvöll. Það er aldrei mikilvægara en nú að hlúa vel að innlendri matvælaframleiðslu til lands og sjávar og tryggja þar með sjálfstæði okkar, matvælaöryggi og gjaldeyrisöflun. Tollastríð og stríðsástand í heiminum sýnir okkur að við verðum sem lítil sjálfstæð þjóð og eyland að standa fast í fæturna varðandi sjálfstæði okkar, auðlindir okkar og nýtingu þeirra. Fjölbreytileiki í atvinnulífi sem byggir á sjálfbærni og góðum störfum skiptir miklu máli fyrir okkur sem þjóð, velmegun okkar, velferð og sjálfstæði til framtíðar. Atvinnuveganefnd fjallar um mörg veigamikil mál sem snúa að þessum þáttum öllum og vonast ég eftir því að það verði gott samstarf í nefndinni við vinnslu mikilvægra mála fyrir land og þjóð.