Störf þingsins.
Frú forseti. Ég ætla aðeins að beina tali mínu að alþjóðamálunum og því alþjóðakerfi sem hefur verið byggt upp hérna og hriktir nú allverulega í eins og við vitum. Aðeins fyrst að tíðindum gærdagsins. Það berast tíðindi af því í bandarískum fjölmiðlum að einstaklingur sem verður mögulega sendiherra hér á Íslandi sé að tala með fremur gáleysislegum hætti um fullveldi þeirrar þjóðar sem hann ætlar að vera sendiherra í. Þar er verið að tala um einhver grínorð um það að Ísland verði mögulega 52. fylkið eða ríkið í Bandaríkjunum. Þetta er að sjálfsögðu ekkert sérstaklega fyndið grín í ljósi þeirrar umræðu sem nú er í gangi vestanhafs um Grænland og reyndar eru þetta eiginlega ummæli sem eru frekar alvarleg. Þetta segir okkur þó kannski ansi mikið, því miður, um það virðingarleysi sem er að grafa um sig í Bandaríkjunum gagnvart fullveldi smárra ríkja. Það þarf ekkert að hafa mörg orð um það að þetta er gríðarlega alvarlegt fyrir lítið land eins og Ísland. Við verðum að átta okkur á því að öll öryggisrök sem Bandaríkjamenn tína til gagnvart Grænlandi eiga líka við um Ísland. Þetta snýst um legu þessara tveggja eyja. Grænland er hernaðarlega mikilvæg eyja en það er Ísland líka þannig að við verðum að horfa á öll þessi orð og allt sem þarna fellur í því samhengi. Við verðum líka að hafa kjark til þess, Íslendingar, þrátt fyrir að við höfum verið í miklu vinasambandi við Bandaríkin, ekki síst í gegnum NATO, að ræða það hvar og hvernig okkar öryggishagsmunum er best komið í þessum breytta heimi. Það er ofureinfaldlega umræða sem við verðum að þora að taka. Deilum við enn þá gildum með þeim sem ráða núna ríkjum í Hvíta húsinu? Deilum við gildum þeirra um fullveldi smárra ríkja? Deilum við þeim gildum sem þar birtast stundum í tali um mannréttindi, til að mynda hinsegin fólks? Tökum við undir að það sé eðlilegt fyrir stærsta herveldi heims og forseta stærsta herveldis heims (Forseti hringir.) að ætla mögulega að hafa afskipti af kosningum í Evrópu? Ég held ekki. Ég held að við verðum að taka umræðu um þetta allt.