157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

Störf þingsins.

[10:56]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á að óska þingheimi og þjóðinni allra heilla á nýju skattaári ríkisstjórnarinnar en eftir eitt ár við stjórnvölinn er hæstv. ríkisstjórn svo sannarlega búin að sýna sitt rétta andlit og við fáum brátt að upplifa hvað gerist þegar verðmætasköpun er bara í orði en ekki á borði. Verðbólgan mælist nú í 4,6%, en það var auðvitað meira en lítið fyndið að hlusta á marga hv. þingmenn hér fyrir jól þegar þeir voru að eigna sér vaxtalækkanir annarra til þess að fegra eigin vanmátt. Hv. þingmenn, báðum megin við borðið, sátu hér í lok desember og ræddu fjárlögin og rökræddu þau fram og til baka. Sjálfstæðisflokkurinn lagði til ótal skattalækkanir og hagræðingartillögur upp á marga milljarða á meðan ríkisstjórninni varð ekki haggað með sinn 143 milljarða kr. útgjaldaflaum og skattahækkanir. Guði sé lof, öskraði hæstv. orkumálaráðherra, að hér væri loksins komin ríkisstjórn sem kynni með peninga að fara og að horfnir væru á burt þeir litlu vesalingar sem vildu að atvinnulífið væri blómstrandi til að skapa verðmæti fyrir land og þjóð. Það var alveg sama hvað var sagt fyrir áramót, hér átti að skattleggja allt í drep á meðan atvinnulífið biðlaði til hæstv. ríkisstjórnar um að gefa sér smá andrými. Og hver er ávinningurinn í byrjun árs? Atvinnuleysi hefur ekki mælst meira síðan í Covid og verðbólguspáin er svo slæm að hún er sögð nöturleg fyrir land og þjóð af peningastefnunefnd Seðlabankans. En einu klikkaði hæstv. ríkisstjórn ekki á og þá sérstaklega markaðsstofa Samfylkingarinnar sem auðvitað útskýrði fyrir öllum hér í ræðupúlti og í fjölmörgum greinum að allt sem Sjálfstæðisflokkurinn segði væri að vanda hreint og klárt bull, þó að auðvitað sé eitthvað allt annað að koma í ljós núna á fyrstu dögum ársins. Steininn tók svo úr þegar hv. þm. Ása Berglind Hjálmarsdóttir samdi hér heilt ævintýri um skattagrýlu sem var í raun ásökun um bull og lygar af hálfu Sjálfstæðisflokksins. Ég held að kjósendur þessarar ríkisstjórnar hafi mjög takmarkaðan áhuga á skáldskap núna þegar staðan er eins og hún er í raunheimum, þið vitið, þar sem þjóðin býr.

En fyrst við erum svona skáldleg og talandi um grýlu, frú forseti, hækkandi skatta, vaxandi verðbólgu og aukið atvinnuleysi, þá held ég að við höfum komist að mjög merkilegum hlut í desember. Það kemur í ljós að skattagrýla er alls ekkert dauð, hún gafst bara alls ekkert upp á rólunum. Hún er að tálga sér væna flís af okkar sauð í Stjórnarráðinu.