157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

Störf þingsins.

[10:58]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Síðan klerkastjórnin tók við stjórnartaumunum í Íran hafa Íranir upplifað miklar breytingar á heimalandi sínu. Byltingunni þar fylgdu gríðarleg pólitísk fjöldamorð og var markmiðið sagt vera það að hreinsa Íran af því sem þótti stríða gegn íslam. Staða mannréttinda í Íran er vægast sagt bágborin og frelsi fólks verulega takmarkað. Borgarar eru ofsóttir, pyntaðir og drepnir af yfirvöldum, kvenréttindi eru lítil og samkynhneigð getur varðað dauðarefsingu. Íranir eru þrautseigir og hafa ekki tekið breyttri stöðu sinni þegjandi og hljóðalaust. Mótmæli eru regluleg og það þrátt fyrir að móttökur íslömsku klerkastjórnarinnar séu ofsóknir, ofbeldi, fangelsi og jafnvel dauðarefsingar mótmælenda.

Ísland hefur látið sig stöðu Írana varða. Þegar við tókum sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í tíð síðustu ríkisstjórnar var m.a. samþykkt ályktun um ástand mannréttinda í Íran sem var lögð fram undir okkar forystu. Árið 2022 fór fram sérstök umræða hér að beiðni núverandi hæstv. dómsmálaráðherra eftir að ung kona var barin til dauða af írönskum yfirvöldum fyrir að hylja hár sitt ekki nógu vel. Fyrir nokkrum dögum síðan hófust á ný mótmæli í Íran. Innan skamms uxu mótmælin og breiddust út meðal allra hópa um allt land. Klerkastjórnin hefur brugðist við með hryllilegu ofbeldi og morðum á mótmælendum. Það er þó ljóst að það hriktir í stjórninni sem aldrei fyrr, enda eru illvirkjarnir þar orðnir einangraðri og máttlausari.

Hugur okkar hlýtur að vera hjá írönsku þjóðinni sem sér vonandi bjartari og frjálsari tíma fyrr en seinna. Þar getur ríkisstjórnin lagt sitt af mörkum og ætti að styðja við kröfur íransks almennings um að íslamska lýðveldið verði afnumið og að þjóðin verði frelsuð undan oki íslamskrar öfgatrúar. Ég hvet alla til að leggja írönskum almenningi það lið sem þeir geta. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)