157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

Störf þingsins.

[11:01]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Skólamálin hafa verið mikið til umræðu síðustu daga í kjölfar þess að nýr ráðherra tók við þeim málaflokki og óska ég hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, Ingu Sæland, velfarnaðar í sínum störfum.

Ég vil byrja á því að fagna því að ráðherra ætli og hafi sagt það umbúðalaust að hún ætli að endurskoða og stokka upp þetta kerfi. Það er mikil þörf þar á. Fyrst vil ég nefna að skóli án aðgreiningar, eins og hæstv. ráðherra hefur mikið komið inn á, er löngu búinn að sýna sig að hafa beðið skipbrot. Hann er ekki að virka og við höfum vitað það um nokkurra ára skeið. Álagið í kennslustofunum er óbærilegt og það er fagnaðarefni að nýr ráðherra átti sig á þessu og ætli að taka á þessu. Ég held að þetta sé eitt stærsta málið. En um leið og við tökum viljann fyrir verkið og fylgjumst með því hvernig eigi að útfæra endurstokkun og endurskoðun á kerfinu þá vil ég hvetja hæstv. ráðherra til að vera dálítið frumleg og skapandi í hugsun sinni og aðkomu að þessum málum. Við eigum ekki og við þurfum að varast það að búa til einhverja ríkisleið í þessum efnum. Það er verið að takast á um það hvort byrjendalæsi eða Kveikjum neistann séu réttu leiðirnar. Festumst ekki í því, sköpum frekar umhverfi fyrir alls kyns hugmyndir. Lítum til þess t.d. sem sjálfstætt reknu skólarnir hafa verið að gera hér í landi. Þeir hafa talsvert meira svigrúm til sinnar starfsemi og þar er margt gott að gerast. Ég hvet ráðherrann til að skapa umhverfi þar sem fjölbreyttar aðferðir, fjölbreyttar leiðir, allar þessar frábæru hugmyndir sem okkar góða skólafólk hefur innan hins opinbera kerfis (Forseti hringir.) en ekki síst hins sjálfstætt rekna — að líta til þess og nýta þær hugmyndir í verki.