157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

Störf þingsins.

[11:06]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Í haust fékk ég svar við fyrirspurn minni til hæstv. loftslagsráðherra um fjármuni til loftslagsmála. Þar lagði ég fram spurningar fyrir hæstv. ráðherra um hversu mikið fé hefði runnið til þessa málaflokks úr ríkissjóði síðustu ár og svarið var að á tímabilinu 2017–2024 hefðu runnið 144 milljarðar til loftslagsmála. Áætlað er að á næstu fimm árum verði þetta 113 milljarðar rúmlega. Ég spurði einnig hver væru helstu verkefnin sem ráðist hefði verið í á sviði loftslagsmála á þessu tímabili. Þar var reyndar fátt um svör og eina sérstaka aðgerðin sem þar var tilnefnd var rafvæðing Herjólfs, ferjunnar til Vestmannaeyja, sem hefur undanfarna daga eftir áramót, eftir verulega hækkun á raforku til hleðslu Herjólfs í Vestmannaeyjum, verið keyrður á olíu, var keyrður á olíu fyrstu daga janúarmánaðar. Helsta aðgerð í loftslagsmálum var að rafvæða Herjólf, eina sérstaka aðgerðin sem var nefnd. Þetta er hálfhlægilegt, frú forseti.

Ég spurðist einnig fyrir um það hvaða mælingar lægju fyrir um árangur af þessum ráðstöfunum og hverjir væru viðtakendur umræddra fjármuna. Það var fátt um svör við þessum spurningum eins og ég hef nefnt hér áður í ræðum. Nú hef ég endurtekið spurningar til allra hæstv. ráðherra til að komast að því hvert þessir fjármunir hafa runnið og hvaða mælingar um árangur liggja fyrir. Þessir fjármunir, frú forseti, virðast hafa sogast niður í hyldjúpt ginnungagap hulið sjónum skattgreiðenda. (Forseti hringir.) Hæstv. ríkisstjórn hefur, í stað þess að huga að því að stemma stigu við slíkum og þvílíkum útgjöldum sem þarna eru — sem eru ígildi (Forseti hringir.) þriggja háskólasjúkrahúsa á þessu árabili, frú forseti, þriggja háskólasjúkrahúsa.