157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna.

297. mál
[11:28]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Jú, eins og ég nefndi í framsöguræðu og kemur fram í frumvarpinu þá er ætlunin að ráðherra láti meta framgang og árangur af þessari breytingu. Ég er algjörlega þeirrar skoðunar að þær aðgerðir sem hafa skilað þeim árangri sem við blasa í jafnréttismálum séu markvissar aðgerðir, hvort sem við horfum á fæðingarorlof þar sem feðrum var tryggður sjálfstæður réttur, sem hefur haft áhrif á stöðu kvenna á vinnumarkaði, hvort sem við erum að horfa á leikskólamál og dagvistunarúrræði. Það þarf ekki annað en að horfa til þeirra landa þar sem þetta er ekki veruleikinn. Jafnlaunavottun er tæki sem þjónaði tilgangi, hefur þroskað hugsun í jafnréttismálum, gert það að verkum að við erum vakandi fyrir því hvernig laun hafa verið ákveðin. Auðvitað hafa þau lög skilað árangri. Það er sjálfstæður árangur í því að við séum alltaf að ræða þessi mál og alltaf vakandi fyrir þeim. Hins vegar er hér núna verið að bregðast við því að það hafa komið fram málefnaleg sjónarmið um að kerfið var allt of flókið. Kerfið var allt of dýrt. (Forseti hringir.) Það er nú afnumið en annað sett upp í staðinn.