jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Frú forseti. Já, áhættan felst kannski í því að út í samfélagið seytli þau skilaboð að fyrirtæki þurfi ekki lengur að hugsa um þessi mál. Þess vegna er ég mjög skýr um það að þetta er jafnvægi milli jafnréttissjónarmiða og síðan þess að við séum ekki með óþarflega íþyngjandi kerfi. Það ógnar líka jafnréttisbaráttunni þegar það verður þegar útbreidd skoðun í samfélaginu að kerfið sé óþarflega þungt. En við erum að styðja við Jafnréttisstofu til að mæta þessum verkefnum. Þetta er fullfjármagnað verkefni. Vinnan er þegar hafin. Þetta mál hefur fengið ágætan meðgöngutíma og svo er þarna þessi klausa um að ég muni fylgjast með og við munum rýna þetta. En það hefur verið góður undirbúningur að þessu og sú vinna er fullfjármögnuð þannig að ég er bjartsýn á það að Jafnréttisstofa valdi þessu verkefni.