157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna.

297. mál
[11:40]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég fagna því að hér sé verið að gera þessar breytingar og leggja niður jafnlaunavottun eins og við höfum þekkt hana undanfarin ár. Ég ætla ekki að fara í karp um það hverju þetta hefur skilað, þetta hefur eflaust skilað hugarfarsbreytingu hjá einhverjum. En við vitum að kerfið var orðið allt of íþyngjandi og allt of miklar kröfur settar á fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög til að uppfylla þetta, sem hefur verið umtalsverð vinna og haft mikinn kostnað í för með sér fyrir þá sem hafa þurft að undirgangast þetta, sem sagt mjög íþyngjandi. Ég fagna því að þetta sé komið á þennan stað. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir og líka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir ötullega framgöngu í því að berjast gegn þessum breytingum.

Það var komið aðeins inn á það áðan varðandi skýrslugjöf, að nú ber þessum aðilum, fyrirtækjum og stofnunum, að skila skýrslum til Jafnréttisstofu. Hæstv. ráðherra sagði að það væri fullfjármagnað (Forseti hringir.) verkefni. En hefur það haft einhvern aukakostnað í för með sér að færa framkvæmd þessa alveg þarna inn?