157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna.

297. mál
[11:43]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ef ég skil það rétt þá er í rauninni verið að stækka þessa stofnun, Jafnréttisstofu. Það er sem sagt verið að efla hana. Kannski ekki. Hæstv. ráðherra fær tækifæri til að svara því enn betur hér á eftir. En einmitt í þeirri viðleitni að minnka ríkisbáknið mætti leita, eins og var í gamla kerfinu, til einkaaðila til að sjá um framkvæmdina á þessari yfirferð, sem óneitanlega verður mjög umfangsmikil með því að taka við öllum þessum skýrslum og taka fundi og samtöl við þessa aðila? Mætti útvista þeim hluta eða erum við föst í því að hafa þetta innan þessarar ríkisstofnunar og jafnvel að hún þurfi þá að stækka og bólgna út með tímanum?