157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna.

297. mál
[11:44]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Frú forseti. Það er hlutverk Jafnréttisstofu samkvæmt lögum að hafa þetta verkefni undir höndum. Það er óbreytt. Með því að kippa einmitt þessum einkaaðilum út úr ferlinu með einföldum rafrænum skilum fyrirtækja beint inn til Jafnréttisstofu án innkomu fyrirtækjanna, þessarar vottunarstofu, erum við einmitt akkúrat að draga úr kostnaðinum. Það er bitinn sem mest kostar. Hér erum við að færa gögnin beint inn til Jafnréttisstofu án aðkomu milliliðanna og draga þannig úr kostnaði. Jafnréttisstofa sinnir eftir sem áður sínu hlutverki samkvæmt lögum. Starfsfólki hjá Jafnréttisstofu mun ekki fjölga með þessu verkefni. Það mun ekki verða niðurstaðan. Þetta er einfaldara kerfi, langtum, langtum einfaldara. Það er það sem er að draga úr kostnaðinum, bæði fyrir atvinnulíf og fyrirtæki. En ég held að sú lausn að ætla að reyna að teikna einhver fyrirtæki aftur inn í leikfléttuna myndi keyra kostnaðinn upp.