jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Frú forseti. Þetta er eitt af þeim frumvörpum sem eru til bóta að mínu mati, þ.e. að hér er verið að hagræða. Hér er verið að snúa af leið sóunar og það er vel og því ber að fagna. Þegar við verðum þess vör að ríkisvaldið er að sóa fjármunum skattgreiðenda þá á auðvitað að snúa af slíkum brautum eins fljótt og auðið er. Þetta mál er auðvitað búið að taka allt of langan tíma. Það hefur legið fyrir talsvert lengi að lagaumhverfi þessara mála og tilraunir ríkisvaldsins til að hafa þarna einhver áhrif og leggja þannig kvaðir á stofnanir og fyrirtæki hafa engan árangur borið, þ.e. tilraunir ríkisvaldsins til að krukka í þessi mál með þessum lögum, jafnlaunavottunarlögunum, hafa engan árangur borið. Þess vegna þarf að snúa frá þeirri framkvæmd sem hefur verið og í þessu frumvarpi er verið að gera það og ég fagna því, frú forseti.
Ég spyr samt örlítið. Ég spyr auðvitað um það að þarna er verið að tala um hagræðingu sem nemi 1,5 milljarði á næstu fimm árum. Að mestu þó, eins og segir í greinargerðinni, er það sparnaður í atvinnulífinu. Ég fagna því að sjálfsögðu en ég velti bara fyrir mér kostnaði ríkisins hvað varðar þessi mál, þ.e. hver sparnaðurinn er hjá ríkinu. Eða er hann næsta lítill, frú forseti? Er eftirlitskerfinu viðhaldið, þó að því sé breytt að sjálfsögðu með þessu frumvarpi? Mun það verða yfirgripsmikið og kostnaðarsamt? Það er það sem ég hef áhyggjur af. Við verðum auðvitað að vakna mjög hratt við það ef enginn sjáanlegur árangur er, frú forseti, að snúa þá af þeirri braut sem fyrst. Við megum ekki sóa peningum skattgreiðenda, megum ekki sóa þeim. Þessi viðbrögð, ekki bara núverandi ríkisstjórnar heldur er þetta mun eldra mál, að skella skollaeyrum við því þegar verið er að benda á það að þarna sé eitthvert kerfi utan um eitthvert system, utan um einhverja framkvæmd sem er ekki að bera neinn árangur. Svo líða bara árin og enginn bregst við fyrr en nú. Þetta má auðvitað ekki líðast. Menn verða að hlusta, menn verða að framkvæma.
Þá kem ég að ástæðu þess að ég tók til máls í þessu máli. Það eru ábendingar frá mér um sóun, líklega augljósa sóun á fjármunum skattgreiðenda í loftslagsmál. Þegar ég spyr um hversu miklir fjármunir þetta eru, hvert þeir hafa farið, hverjir hafa tekið við þeim og hvaða árangur þetta hefur borið, þá er næsta lítið um svör. Þá hafa menn engin svör. Eins og: Hver er árangurinn? Engin svör. Erum við virkilega, frú forseti, að sóa 257 milljörðum á einhverjum áratug til aðgerða í loftslagsmálum og það er enginn sem getur sagt til um hvort það beri einhvern árangur? Menn verða að vera svolítið snöggir að snúa af slíkum brautum, snöggir að snúa við og leiðrétta sig. Ég bíð og ég mun áfram vinna í þessu máli og hef óskað eftir svörum frá öllum ráðherrum núna til að reyna að grennslast fyrir um það í hvaða verkefni þetta hefur farið, í hvaða verkefni nákvæmlega þessir fjármunir hafa farið. Hverjir hafa tekið við þessum peningum? Það liggur ekki fyrir. Hver er árangurinn af þeim aðgerðum sem farið er í? Það liggur ekki heldur fyrir. Ef í ljós kemur að þarna er pottur brotinn og ef hann er að einhverju leyti brotinn þá verður að snúa af þessari braut viðstöðulaust, eins og við erum að gera í þessu máli um jafnlaunavottun. Þarna kom í ljós, og ekki nýleg frétt, að það væri enginn árangur. Loksins núna er komið frumvarp og ég hvet til þess, frú forseti, að svona frumvarp eins og þetta fái hraða afgreiðslu í þinginu og Miðflokkurinn mun gera allt sem í hans valdi stendur til að liðka til í þessu máli.
Ég ítreka þó spurningar mínar um það hvort kerfið, hið opinbera — hvort það sé nægilegur sparnaður þar vegna þess að þarna er gert ráð fyrir að það verði í höndum Jafnréttisstofu að fylgjast með þessu. Er þarna einhver möguleiki á að spara með tilliti til árangurs? Hversu stórt kerfi þurfum við að hafa utan um þetta jafnvel þótt það sé verið að breyta þessu verulega? Hversu nauðsynlegt er að hafa starfsmenn, stofnanir uppteknar við það að fylgjast með þessu? Ég vona að ríkisstjórnin fylgist vel með því hvort það sé einhver árangur af þessari starfsemi. Þarna er verið að gera ráð fyrir reglubundinni skýrslugjöf, eftirfylgni Jafnréttisstofu o.s.frv. Fyrirtæki og stofnanir eiga að skila launagögnum. Ég spyr, frú forseti: Er þarna of mikið í lagt? Er þetta nauðsynlegt? Ber þetta einhvern árangur og er hann mælanlegur? Ég óska eftir því að það verði fylgst gaumgæfilega með því hvort svo sé þannig að menn geti snúið þetta kerfi eitthvað niður í framhaldinu ef árangurinn er lítill eða enginn.
Það var þetta sem ég ætlaði að leggja inn í þetta mál.