nálgunarbann og brottvísun af heimili.
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svarið við andsvari mínu. Þær tölur sem ég er að vísa í og vil segja að séu ekkert síður mikilvægar eru úr Læknablaðinu fyrir tæpu ári síðan; 15% af þeim sem búa saman á heimili hafa tilkynnt um ofbeldi, þar af 10% karlar og 20% konur. Það getur vel verið að tölur séu á reiki en þetta er alla vega það sem Læknablaðið segir.
Ég vil halda áfram að höggva í sama knérunn. Ég er í nefndinni og mér finnst það að ákveðnu leyti alvarlegt, þrátt fyrir að Jakob Birgisson sé mjög mikið karlmenni, (Gripið fram í.)hann er það, við vitum það öll, og það er ekki ásættanlegt að í hverri jafnréttisnefndinni á fætur annarri séu ekki karlmenn og ef þeir eru það þá er það einn og einn á stangli. Auðvitað er við karlmenn að sakast líka en hvað sér hæstv. dómsmálaráðherra fyrir sér í því, með handvirkum aðgerðum, að fjölga körlum — og þetta er ekkert grín — í þessum nefndum? Mín tilfinning er sú, og ég hef bara það staðfest með orðræðu, að það sé halli í nefndunum og hann birtist ekki bara í fjöldanum heldur birtist það í orðræðu og gerðum.