157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

nálgunarbann og brottvísun af heimili.

298. mál
[14:24]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Það er alltaf gott að fá svona upplýsingar. Þetta er mjög áhugavert einmitt með nálgunarbannið, með ökklabandið og með samskiptabannið og hvernig hægt er að gera þetta og hvenær þetta er orðið of íþyngjandi. Þetta snýst alltaf um að þetta nái utan um markmiðið í sjálfu sér, að brotaþolinn upplifi að hann sé öruggur. En þá kemur einmitt að því, kemur að markmiðinu, því að oft erum við að setja lög og við erum að setja reglur og við náum ekkert alltaf að fylgja því nægilega vel eftir. Eins og t.d. forvörnin, og nú ætla ég ekki að tala um það að við séum ekki að fylgja því nægilega eftir, en t.d. ein mikilvægasta forvörnin sem við höfum sett hérna og erum að fylgja eftir er að gerandinn sé fjarlægður í heimilisofbeldisaðstæðum, sem er gríðarlega mikilvægt og mikil forvörn fyrir einmitt börn og ungmenni.

Varðandi eftirlitið og annað og framfylgdina, það þarf auðvitað fjármagn og það þarf mannafla hjá lögreglunni til að sinna þá þessu úrræði. Mikilvægt er líka að meta þá eftir vissan tíma bara hvaða árangri þetta sé að skila, hvort þetta sé að virka hjá okkur, er t.d. verið að setja næga fjármuni inn í þetta? Komandi úr þessum geira, telur hv. þingmaður að í rauninni sé tryggt nægt fjármagn og nægur mannafli hjá lögreglunni til að sinna þessu um allt land?