nálgunarbann og brottvísun af heimili.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir hans andsvar. Ég held að þetta sé grundvallaratriði, bara í öllum ofbeldismálum og jafnframt í kynferðisbrotamálum, að það verði hugað að því að gerendur fái ráðgjöf með einum eða öðrum hætti og ég hugsa að það sé bara alveg kórrétt niðurstaða hv. þingmanns að það muni draga úr líkum á því að nálgunarbann eða brottvísun af heimili verði rofin ef viðkomandi fær slíka aðstoð. Þess ber að geta að slík aðstoð er að einhverju leyti til. Ég vona að ég sé ekki að fara rangt með en mér finnst eins og það heiti Taktu skrefið og varði annaðhvort ofbeldi eða kynferðisofbeldi. Þar er það þannig að það er möguleiki fyrir gerandann, ef hann áttar sig á því að hegðun hans hefur verið með þeim hætti að hún sé óásættanleg gagnvart öðrum einstaklingi, að fá slíka ráðgjöf. Sjálfsagt er það hálfgerð útópía að halda að það verði einhvern tímann algjörlega gert útilokað að einhver beiti ofbeldi eða umsáturseinelti eða hvað sem við köllum þessi ofbeldisbrot en ég held að það sé mjög mikið atriði að við hugum að þeim forvarnaaðgerðum sem mögulegar eru til að svo verði ekki. Þá erum við auðvitað að færa þetta að einhverju leyti fram og aftur, og þá er ég að meina stigið, en það skiptir auðvitað máli. Helst myndi maður vilja koma í veg fyrir ofbeldi og jafnframt auðvitað koma í veg fyrir að ofbeldi verði ítrekað.