nálgunarbann og brottvísun af heimili.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir gott svar við andsvari mínu og góðar pælingar og hugleiðingar. Mig langar aðeins í framhaldi að spyrja, af því að þetta er greinilega ekki einhvers konar kvöð eða skylda á ofbeldismennina — ég myndi vilja að það yrði lagt til að menn yrðu skyldaðir á einhvers konar námskeið þannig að ábyrgðin væri þeim algerlega ljós, að hún væri þeirra en ekki þolendanna. Síðan er það hitt að mig langar að spyrja hv. þingmann sökum reynslu hans, því að ég geri mér grein fyrir því eða held a.m.k. að hann hafi verið í miklu samstarfi við kollega sína á Norðurlöndunum, um svona tvennt: Hvað gerðist á Norðurlöndunum þegar þetta var innleitt þar? Breyttist einhver hegðun eða minnkaði í einhverjum brotaflokkum, fækkaði tilkynningum eða fjölgaði þeim? Getur hv. þingmaður svarað því hvað gerðist? Síðan er það eftirlitið, og ég hef mína þekkingu um störf lögreglunnar frá hv. þingmanni og kollega mínum, Víði Reynissyni, og úr sjónvarpinu: Er eftirlitið þess eðlis að menn geti fylgst með? Eru menn að fylgjast með gerendum eða ofbeldismönnum frá mínútu til mínútu og skoða hvar þeir eru eða eru einhver merki sem birtast þegar þeir fara nærri þeim stað þar sem nálgunarbannið gildir? Þá er ég að velta fyrir mér kostnaðinum við eftirlitið og hvort þetta sé miklu ódýrara með nýrri tækni. Þannig að þetta er spurningin hvað gerðist á Norðurlöndunum og síðan þetta með eftirlitið og tæknina. Hvernig er því háttað? Geta þolendur verið nokkuð vissir um að lögreglan fái tilkynningu um það ef nálgunarbann er rofið?