157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

nálgunarbann og brottvísun af heimili.

298. mál
[14:58]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar að byrja hér í upphafi minnar ræðu á að fagna því frumvarpi sem hér er komið fram og tel að hér sé klárlega stigið skref í rétta átt í þessum málaflokki. Við sem höfum starfað í lögreglunni þekkjum hvaða afleiðingar þetta getur haft og hefur, hvort sem það er heimilisofbeldi eða umsáturseinelti, og þá er að sjálfsögðu ekki annað hægt en að standa hér og fagna öllum skrefum sem tekin eru í þá átt að gera stöðu þolenda í þessum málum betri og svo sannarlega er verið að gera það í þessu máli.

Það er búin að vera löng og mikil umræða innan lögreglunnar og í samfélaginu öllu í sjálfu sér um þetta rafræna eftirlit og hvort menn eigi að stíga það skref sem er stigið með því að festa það í lög að þetta sé heimilt. Ef við horfum bara til nágrannalandanna, eins og er gert hér í þessu frumvarpi, er alveg ljóst að þetta úrræði hefur verið mikið notað og er mikið notað í löndunum í kringum okkur, í þeim löndum sem við höfum borið okkur saman við og horfum gjarnan til í lagasetningu. Því ítreka ég að ég fagna því að við séum komin á þann stað hér að vera komin með frumvarp sem heimilar þetta.

Árið 2016 voru gerðar breytingar á almennum hegningarlögum til þess að vernda brotaþola sem fólu í sér innleiðingu sérstakra ákvæða gegn ofbeldi í nánum samböndum annars vegar og svo gegn ofsóknum eða áreiti og eftirfylgni hins vegar, eða þessu umsáturseinelti. Þarna var um gríðarlega mikla og góða breytingu að ræða að mínu viti og gerði lögreglunni miklu auðveldara um vik að eiga við þessi mál. Sömuleiðis var skráningarferli innan lögreglukerfisins eða LÖKE breytt, sem gaf okkur betri mynd og betri sýn á það hver raunverulegur fjöldi þessara brota er, sem kom síðan í ljós að voru náttúrlega umtalsvert fleiri brot en við höfðum kannski áttað okkur á þegar menn fóru að skrá þetta rétt eða með betri hætti.

Þessi brot í nánu sambandi eru sennilega með verri brotum sem við upplifum, trúnaðurinn og traustið sem þarna er brotið. Oft er þolanda erfitt að stíga fram og einhvern veginn að kæra eða leita sér aðstoðar eða upplýsa um hvað er í gangi inni á heimili sem getur leitt til gríðarlega mikils skaða fyrir viðkomandi og í raun og veru þá sem standa honum næst, heimilisfólk, börn þar á meðal sem eru oft vitni að slíku. Því fagna ég og vil ítreka hvað það breytti miklu að fá breytinguna 2016 fyrir lögregluna. Ef ég man rétt þá var það einmitt partur af þeirri breytingu þegar lögreglustjóri gat tekið ákvörðun um að kæra óháð samþykki þolenda. Það er nú í þessum málum oft erfitt að fá þolendur til að stíga fram og kæra, hvort sem það er eiginmaður eða einhver nákominn og ótti sem fylgir slíkri ákvörðun. Ég hef í mínu starfi hitt töluvert marga einstaklinga sem einmitt voru í þessari stöðu, oftast voru þetta nú konur, sem höfðu ekki kjark og þor og vilja til að stíga fram og kæra en þökkuðu fyrir á síðari stigum þegar lögreglan hafði gripið inn í og í raun og veru tekið það í sínar hendur og gert að sinni ákvörðun að kæra fyrir þessa hegðun. Það er hins vegar staðreynd að nálgunarbann eitt og sér, eins gott og það er, er afskaplega erfitt og hefur reynst erfitt oft á tíðum, sérstaklega kannski í svona umsáturseinelti, að sanna brotið. Því held ég að með tilkomu þessa frumvarps, þar sem við erum að tala um rafræna vöktun, verði þá eftirlitshlutverk löggjafans mun einfaldara en það er í dag og þar með öryggi brotaþolans sömuleiðis, sem þetta snýst náttúrlega um. Allt þetta verður að snúast um þolandann og að gera hans stöðu bærilegri og betri og öruggari en hún er í dag. Ég tel að þetta skref sem við erum að stíga hér með þessu frumvarpi sé klárlega skref í þá átt.

Síðan er hinn hlutinn sem mig langar aðeins að ræða hér og það er hvernig við ætlum að útfæra þetta. Með hvaða hætti er hægt að tryggja að þetta úrræði nýtist löggæslu og þolendum með sem bestum hætti? Þar komum við náttúrlega að lykilspurningunni er varðar fjármagn til löggæslunnar til að fylgja þessu verkefni eftir. Við höfum séð í gegnum tíðina að það hafa verið sett átaksverkefni inn til ríkislögreglustjóra t.d. og embættanna til að flýta málsmeðferð heimilisofbeldismála og kynferðisbrotamála þar sem hefur verið fjölgað í rannsóknardeildum til þess að hraða málsmeðferð, sem hefur virkað vel. Ég held, virðulegur forseti, að það sé gríðarlega mikilvægt að ef þetta frumvarp, sem ég svo sannarlega vona, verður samþykkt fylgi fjármagn með í kjölfarið þannig að það sé hægt að fara í einhvers konar átaksverkefni til að byrja með og vonandi þá fylgja því eftir þannig að við sjáum árangurinn strax, að þetta verði ekki einhvers konar verkefni sem drukknar einhvern veginn í öðrum störfum lögreglunnar og við munum ekki sjá árangur af, þannig að við þurfum að setja þunga í verkefnið í byrjun til að senda skýr skilaboð og til þess að ná fram í raun og veru þeirri niðurstöðu og þeim árangri sem frumvarpið gerir ráð fyrir.

Ég held að það hafi nú verið, virðulegur forseti, hv. þingmaður Grímur Grímsson sem talaði hér um að fela fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra eftirlitið. Ég held að það sé einboðið. Það var alla vega sú hugmynd sem ég var sömuleiðis með að þetta yrði einhvern veginn sett þar inn, það kerfi sem tengist þessari rafrænu vöktun, hvort sem það kallar á einn starfsmann eða tvo, ég hef ekki þekkingu eða upplýsingar um hvað þetta yrði í raun og veru mikið verkefni, mikið umfangs. Alla vega held ég að því væri langbest komið fyrir þar inni og að aukningin á því fjármagni sem þarf til að sinna eftirlitinu færi þá þangað inn.

Við þurfum sömuleiðis, eins og hefur verið talað um í umræðunni, aðeins að horfa á hvernig við getum komið í veg fyrir að þetta gerist, sem er alltaf auðvitað besta niðurstaðan. Það eru þessar blessuðu forvarnir sem við tölum gjarnan um og sinnum því miður ekki alltaf nægilega vel. Það varð gríðarleg breyting á lögreglunni eftir efnahagshrunið upp úr 2009 og 2010 þar sem vantaði fjármagn inn í lögregluna. Þá fóru því miður nánast öll lögregluembætti landsins í það að skera niður hjá sér forvarnadeildirnar. Hér í höfuðborginni sérstaklega var mjög öflug forvarnadeild sem sinnti skólum, leikskólum og framhaldsskólum og hinum ýmsu kynningum. Þetta var allt saman skorið niður. Við höfum verið í erfiðleikum núna síðustu ár að reyna einhvern veginn að ná í skottið á okkur í þessari forvarnavinnu sem var svo sannarlega góð og skilaði sér alveg gríðarlega vel. Ég held að það væri líka mjög skynsamleg nálgun og bara mjög skynsamlegt í öllu tilliti þegar þetta frumvarp verður samþykkt að setja samhliða á laggirnar einhvers konar forvarnaátak hvað þetta varðar vegna þess að auðvitað er besta útkoman sú að koma í veg fyrir þessa hegðun áður en hún á sér stað.

Við höfum sett fjármagn inn í lögregluna sem er vel. Ég vona að það fjármagn hafi skilað sér. Við vorum hér með frumvarp hæstv. dómsmálaráðherra ekki fyrir löngu sem fjallaði um að fjölga í lögreglunni um 50 stöðugildi. Ég hef ekki tölur um hve mörg þeirra eru komin inn en ég vona svo sannarlega að það náist að manna þær stöður að fullu sem allra fyrst.

Við höfum líka séð annað verkefni sem fór af stað á síðasta kjörtímabili sem er um þessa samfélagslögreglu eða samfélagslöggæslu, sem er önnur hliðin á þessu forvarnastarfi sem ég var að nefna hér áðan. Þar held ég að við þurfum að setja fókus á þessi forvarnaverkefni sem ég talaði hér um áðan. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að auka þarna fjármagn og auka mannskap í samfélagslöggæslu. Þetta er fjármagn sem við fáum margfalt til baka, þannig að þó að talan í fjárlögunum kunni að virðast einhverjum há þá er alveg ljóst að í fjárlögum framtíðarinnar mun þessi tala koma margfalt, margfalt til baka. Við þurfum að horfa á stóru myndina og við þurfum að horfa til lengri tíma þannig að eins ánægður og ég er með þetta frumvarp, þetta skref sem ég held að verði klárlega til bóta fyrir þolendur í þessum málaflokki, þá þurfum við að horfa til framtíðar. Við þurfum að setja aukið fjármagn í þetta. Við þurfum að gera þetta skilvirkt. Við þurfum að fara í átak samhliða lagasetningunni til að setja þunga í eftirlitið svo að menn finni fyrir því, hvort sem það er í forvarnaskyni eða öðru, að þetta frumvarp sé að gera gagn. Síðan þurfum við að fara að sjálfsögðu í ræturnar, að reyna að forverja okkur eins mikið og hægt er gagnvart þessari hegðun, fyrirbyggja að hún komi upp. Auðvitað er það aldrei hægt að fullu en hvert tilfelli sem við náum að lækka töluna um skiptir máli. Þar held ég að við séum að tala um m.a. samfélagslöggæsluna, þannig að ég skora bara á hæstv. dómsmálaráðherra að keyra þetta mál í gegn og fara samhliða í þessa vinnu sem ég hef talið upp til að ná að hámarka þann árangur sem við viljum ná út úr þessu, sem er að fækka þessum tilfellum og auka öryggi þolenda í þessum málum.

Ég held að ég hafi svo sem ekki meiru við þetta að bæta að svo komnu máli en þakka bara fyrir mig.