157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

nálgunarbann og brottvísun af heimili.

298. mál
[15:28]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S):

Frú forseti. Ég vil aftur þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir framsögu sína í þessu máli og fyrir góða umræðu hér við 1. umræðu þessa máls. Það er kannski ekki oft sem við ræðum mál í þessum sal sem snerta jafn beint og jafn djúpt öryggi fólks í hinu daglega lífi eins og þetta. Þetta frumvarp er kannski ekki það týpíska mál sem við erum oft að ræða hér þegar kemur að fjárlögum eða einhverjum tölum eða einhvers konar málum sem snerta kannski smærri hópa. Þetta er mál sem snýst um það hvort einstaklingar, oftast konur en auðvitað líka bæði kynin, geti lifað sínu lífi án stöðugs ótta. Þetta fjallar líka um hvort samfélagið okkar sé að bregðast nægilega hratt við og af nægilegum þunga þegar hætta steðjar að. Í umræðunni í gegnum árin um heimilisofbeldi og umsáturseinelti höfum við ítrekað heyrt sögur af því hvernig kerfið er að bregðast of seint við. Við höfum oft séð að nálgunarbann er meira bara til á pappír en veitir í raun og veru litla vernd, litla raunverulega vernd. Það er oft gripið til úrræða eftir á þegar skaðinn er skeður, kannski eðlilega. Það er þessi veruleiki sem frumvarpið er mjög augljóslega að reyna að bregðast við og held ég að það séu flestir sammála um að það sé í heildina mjög gott.

Frú forseti. Meginmarkmið frumvarpsins eru bæði réttmæt og brýn. Það virðist vera mikill vilji til staðar hjá löggjafanum til að færa vernd brotaþola framar, styrkja um leið úrræði lögreglu og veita henni enn meira vald til að gera leiðirnar til að koma í veg fyrir endurtekið og kannski síendurtekið ofbeldi raunhæfari og skilvirkari. Það skref er mjög mikilvægt og vert að undirstrika það strax hér við upphaf 1. umræðu málsins. Þetta frumvarp virðist líka að einhverju leyti marka ákveðin þáttaskil í nálgun, eigum við að segja okkar, þó að það komi auðvitað frá ríkisstjórninni, en okkar sem samfélags. Í staðinn fyrir að horfa eingöngu á refsingar eftir að brot hafa verið framin, þó að það sé auðvitað byrjunarreiturinn, er verið að leggja meiri áherslu á forvarnir hvað varðar síendurteknu brotin og virkt eftirlit því heimild til rafræns eftirlits samhliða nálgunarbanni er auðvitað hugsað sem millivegur. Það er vægara úrræði en gæsluvarðhald en mun virkari vernd en hefðbundið bann eitt og sér. Það verður mjög áhugavert að sjá hvernig málið verður þegar það kemur út úr allsherjar- og menntamálanefnd og fylgjast með umræðunni þar hvar maðurinn sem ég sit hér á þingi fyrir er í þeirri nefnd, hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson.

Frú forseti. Þegar svo er komið, þegar við erum, að ég held og að ég tel, öll sammála um mikilvægi málsins og réttmæti markmiðanna, þá ber okkur að sjálfsögðu skylda í þessari málstofu hér til að ræða útfærsluna af mikilli og sérstakri ábyrgð því það er einmitt í svona málum sem snerta svona viðkvæm réttindi og öryggi, bæði brotaþola en einnig þeirra sem sæta úrræðunum, að löggjöfin verður að standast strangar kröfur. Ef þetta á að virka og endast sem úrræði og gott og mikilvægt úrræði sem gæti mögulega bjargað fullt af fólki þá verður að gera þetta af mikilli fagmennsku. Rafrænt eftirlit, hvort sem við köllum það staðsetningarbúnað eða ökklaband, er að sjálfsögðu mjög íþyngjandi úrræði. Það liggur í hlutarins eðli. Að því sögðu er alveg klárt að ef þú lítur niður og sérð gúmmíband um ökklann á þér með bílskúrshurðaopnara og blikkandi ljós þá er ansi líklegt að þú hafir gert eitthvað til að vinna fyrir því með aðgerðum sem við viljum ekki sjá í samfélaginu okkar. En það breytir því ekki að það felur í sér stöðugt eftirlit með ferðum einstaklings sama þó að sá einstaklingur sé að gera hluti sem við viljum ekki sjá og er beitt án þess að dómur hafi fallið. Þess vegna er það lykilatriði að skilyrðin fyrir beitingu úrræðisins séu skýr og rökstudd.

Frú forseti. Eitt af þeim atriðum sem hafa verið gagnrýnd eða kallað fram í þeim umsögnum sem hafa komið fram um þetta mál í samráðsgáttinni er gagnrýni eða ábending um það vald sem lögreglu er falið samkvæmt þessu frumvarpi. Sjálfur hef ég ekki miklar áhyggjur af því en ég held að það sé allt í góðu að veita þeim sem hafa komið með þessar umsagnir að leyfa þeirra orðum aðeins að óma hér því lögreglan fer auðvitað með rannsókn málsins, tekur ákvörðun um beitingu rafræns eftirlits og annast framkvæmd þess. Þetta er skiljanlegt út frá hagkvæmni og hraða, og ekki bara skiljanlegt heldur mjög skiljanlegt, en kallar jafnframt á skýrar varnir gegn því að vald safnist of mikið á einn stað, hefur verið sagt. Þetta er einmitt eitthvað sem ég myndi giska á að verði mikið farið yfir í hv. allsherjar- og menntamálanefnd og verði eitt af því sem verður mjög mikið rætt þar þótt við treystum að sjálfsögðu lögreglunni okkar til góðra verka.

Frú forseti. Þá hefur einnig verið bent á hættuna á því að úrræðið verði með tímanum sjálfvirkt. Svo er kannski líka spurning hvort það sé bara markmiðið og þá er það bara hið besta mál. En þegar svona nýtt og sterkt úrræði kemur fram, þetta er eitt af þeim úrræðum sem virkar eins og það verði mjög gott ef þetta gengur upp, ef allt af framangreindu gengur upp, þá er hætta á því, eða hætta og ekki hætta, að það verði normið. Kannski er það meginmarkmið að þetta verði normið en þess þá heldur að öllu ofangreindu þarf framkvæmdin að vera mjög vel matreidd. Maður myndi halda að rafrænt eftirlit ætti ekki að vera sjálfgefið næsta skref í öllum málum en kannski er það einmitt tilgangurinn og þá er það bara eitthvað sem þarf að ræða inni í nefndinni og við fáum betur að vita hér við 2. umræðu.

Svo er persónuvernd annað atriði sem þarf að taka alvarlega því vinnsla staðsetningargagna er mjög viðkvæm en notuð mikið af lögreglu. Maður myndi halda að það þurfi að liggja vel fyrir hver hefur aðgang að gögnunum, hversu lengi þau eru varðveitt og hvenær þeim er eytt. Aftur er það eitthvað sem á væntanlega eftir að koma verulega til tals í hv. allsherjar- og menntamálanefnd og verður áhugavert að vita meira um þetta. En í heildina er þetta frumvarp bara nokkuð gott, nokkuð vel skrifað, nokkuð ítarlegt. Vísað er til annarra Norðurlanda til að reyna að átta okkur á hvert við erum að sækja fróðleikinn og það hefur verið nokkuð áhugaverð lesning. En aftur endurtek ég rétt undir lokin á þessari stuttu ræðu minni að meginmarkmiðið er gott, það er göfugt en verði þessu ekki framfylgt af þeirri varfærni og fagmennsku sem ég hef verið að nefna gæti þetta fljótt orðið umdeilt og það er alls ekki það sem við viljum og gengur gegn heildarmarkmiði frumvarpsins. Við vitum að úti í samfélaginu okkar eru aðilar sem munu vera gríðarlega mikið á móti þessu og þá þarf öll framkvæmdin og allur lagaramminn í kringum þetta úrræði að vera mjög sterkur til að mæta þeirri gagnrýni sem mun koma.

Frú forseti. Í heild sinni tel ég að frumvarpið sé skref í rétta átt. Það sýnir vilja til að bregðast við alvarlegu samfélagslegu vandamáli og bæta raunverulega vernd þeirra sem búa við ótta. Um leið er ljóst að útfærslan kallar á varfærni, vandaða framkvæmd og virkt eftirlit af hálfu löggjafans. Við eigum og ég held við getum öll sem þingheimur staðið saman um að verja brotaþola með öflugum úrræðum án þess þó að fórna grundvallarreglum réttarríkisins okkar. Ég held að það sé í grunninn jafnvægið sem þarf að ná við afgreiðslu og umræðu þessa máls. Ef okkur tekst það þá er þetta frumvarp ekki bara réttmætt heldur í grunninn mjög nauðsynlegt.