almenn hegningarlög.
Frú forseti. Fyrst vil ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir góð orð um þau frumvörp sem ég er að mæla fyrir hér í dag og vinnuna að baki þeim. Hv. þingmaður veit auðvitað allt um að það er ekki hrós til ráðherrans heldur til míns góða starfsfólks sem hefur lagt frábæra vinnu í þau mál og ég er mjög sammála því að það skiptir miklu máli að það sé hægt að þræða sig í gegnum frumvörpin þannig að sagan af markmiðum og tilgangi sé skýr.
Hvað varðar þetta frumvarp spyr hv. þingmaður hvort það nái yfir þá einstaklinga sem hafa verið dæmdir, hafa afplánað dóm, og svarið við því er já. Við erum annars vegar í þessu frumvarpi að horfa til þeirra einstaklinga sem fremja eitthvert alvarlegt brot en eru síðan metnir ósakhæfir og það blasir strax við að þeir munu ekki afplána í fangelsi. Þeir falla undir þetta frumvarp. Það gera hins vegar líka þeir einstaklingar sem hafa verið dæmdir fyrir eitthvert alvarlegt brot, verið metnir sakhæfir en eru engu að síður mjög hættulegir. Þá getur farið fram mat, annaðhvort meðan á dómnum stendur eða í kjölfarið, á því hvort það sé þannig hætta af því að þeir gangi lausir að til þessarar ráðstöfunar komi í beinu framhaldi af dómnum. Þannig er þetta í þessum tveimur tilvikum og í greinargerðinni er rakið í hvaða tilvikum þetta getur komið til greina. Það þarf þá að vera ákvörðun sem er alltaf tekin af dómara. Hún er alltaf tímabundin. Hún byggist alltaf á nýlegu og óháðu mati sérfræðings. Skilyrðin eru auðvitað mjög ströng vegna þess að það er verið að halda mönnum sem hafa afplánað dóm en það er þá gert vegna þess að almannahagsmunir beinlínis krefjast þess því ógnin og hættan er svo mikil.