almenn hegningarlög.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir þetta frumvarp. Svona fyrst í það og líklegast er það bara þannig að það er skynsemi í því og jákvætt bæði fyrir brotamenn og samfélagið allt. Hér erum við að tala um menn og konur, andlega veik, sem eru hættuleg og eru ekki sakhæf og svo menn sem hafa afplánað dóma en eru taldir stórhættulegir eftir afplánun. En það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um er að þessi Miðstöð um öryggisráðstafanir, af því að þetta eru, eins og hefur komið fram í máli hæstv. ráðherra, náttúrlega frelsissviptingar í mögulegu framhaldi af afplánun, eru verulega mikil inngrip. En það kemur líka fram í frumvarpinu að það krefst nýlegs og óháðs sérfræðimats áður en frelsisskerðing er ákveðin eða framlengd, því það er auðvitað viskulegt að athuga það meðan á afplánun stendur, ef það er stór hætta af þessum einstaklingi í framhaldinu, að það skapist ekki eitthvað bil þarna á milli, menn fari beint í þá öryggisráðstöfun. En hvaða einstaklingar koma til með að búa til þetta mat? Hverjir eru þetta? Það er örugglega mjög flókið að búa til svona mat alveg óháð öllu. Hvenær verða menn óháðir í þessu? Ég treysti alveg kerfinu en hverjir væru að gera þetta óháða mat? Því þetta er alveg gríðarlega íþyngjandi aðgerð sem fer fram þarna.